Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.2006, Qupperneq 57
DV Siðast en ekki síst
FÖSTUDAGUR 13. ÖKTÓBER2006 77
DÓMSTÓLL
götunnar
Eiga íslensk stjórnvöld að
upplýsa umþær hleranir
sem hafa verið gerðar?
„Já, aðsjálf-
sögðu það liggur
í augum uppi."
Gylfi Friðriksson,
öryrki
„Tvímælalaust eiga
þau að upplýsa um
þessar hleranir."
Kristlaugur Leósson,
vinnurhjá
Blindravinnustofunni
„Já, það finnst mér
Mig hefur alltaf
grunaðað
stjórnvöld hafi
beitt hlerunum."
Birgir Kristjánsson,
ellilífeyrisþegi
„Öll þessi mál eiga
að koma upp á
borðið. Verðurað
koma í Ijós
hvernig þetta var."
Karl Guðmundsson
„Stjórnvöld eiga
að upplýsa um
þessi hlerunar-
mál."
ÖrvarJens, nemi
„Ég held að þetta
séstormurí
vatnsglasi. Allar
fréttir af þessu
eru bara bull."
Guðmundur Rúnar,
ellilifeyrisþegi
„Já, þaðfinnst
mér.Ég vilfáþessi
mál upp á borðið."
Arinbjörn
Marinósson, nemi
Heiðar í hugbúnaðinn
Veðurfréttamannsferill Heiðars
snyrtis Jónssonar varð ekki lang-
lífur hjá NFS, enda hafði hann vart
hafið störf þar þegar breytingar
brustu á. En Heiðar kippti sér lítt
upp við breytingarnar og þótt hann
hafi í nógu að snúast í snyrtivöru-
kynningum og fyrirlestra- og nám-
skeiðahaldi hefur hann nú fundið
sér enn eitt starfið.
Heiðar hefur ráðið sig til starfa
við vefsíðugerð hjá hugbúnaðar-
fyrirtæki. Heiðar verst allra frétta af
þessu nýja starfi, enda segist hann
svo oft hafa hent sér út í djúpu
laugina án þess endilega að komast
í mark, að nú ætli hann að hægja á
upplýsingaflæðinu.
Eins og flestum er kunnugt hefur
Heiðar Jónsson fengist við margt um
dagana og alls staðar þótt takast vel
upp. Hann hefur verið fýrirsæta, dag-
skrárgerðarmaður í útvarpi, ráðgjafi,
litgreint hálfa þjóðiná, verið með eig-
in sjónvarpsþætti, lífssaga hans hef-
ur komið út á bók og eftir margra ára
farsælt starf sem flugþjónn í údönd-
um og hér heima sneri hann aftur í
snyrtivörubransann og sló rækilega
í gegn í sjónvarpi með því að taka
til hjá öðrum. Kominn
hátt á sextugsaldurinn
hoppar Heiðar nú gaf-
vaskur inn.í hugbún-
aðargeirann og íslensk-
ar konur vona hátt og
í hljóði að sem bónus
fái hann eigin vefsíðu,
þangað sem hægt verð-
ur að leita fróðleiks...
Heiðar snyrtir í hugbún
aðargeirann Læturekki
deigan síga þrátt fyrir stutt
stopp á NFS og ærinn starfa I
snyrtivörubransanum.
Airwaves-hátíðin að springa
Útlendingar slást um miða
„Við þurftum að hækka miða-
verð um þúsund krónur frá því í fýrra
því við getum ekki selt eins marga
miða,“ segir Þorsteinn Stephensen
hjá Herra örTygi sem skipuleggur
tónlistarhátíðina Iceland Airwaves
sem haldin er í Reykjavík 18. október
til 22. október.
„í fýrra sköpuðust álagspunktar á
ákveðnum tímum og það mynduð-
ust biðraðir fýrir framan staðina af
fólki með miða og þess vegna verða
seldir færri miðar í ár en í fyrra," seg-
ir Þorsteinn.
Hann segir að það sé víða
orðið uppselt þar sem miðar
eru seldir erlendis og
sala á miðum í Skand-
inavíu hefur aukist
mikið miðað við
það sem var í lýrra.
„Svo er Þýskaland
að koma sterkt inn
því það eru betri
beinar samgöngur frá
Berlín til íslands og
áhugi Þjóðverja á ís-
lenskri tónlist er allt-
af að aukast. Svo
eru íslendingar ansi fyrirferðarmikl-
ir í Berlín," segir Þorsteinn.
Hann segir að ef tónleikastöðum
í Reykjavík verði lokað og ekki komi
nýir inn skapist það vandamál að há-
tíðin verði of stór fyrir Reykjavík. „Við
erum ekkert farnir að ræða það hvað
við munum gera á næsta ári varð-
andi framboð á skemmtistöðum en
viljum helst ekki færa okkur úr mið-
bænum," segir Þorsteinn. Hann seg-
ir að kynning á hátíðinni í Kaup-
mannahöfn í sumar sé auðsýnilega
að skila sér en Iceland Airwaves
var með tónleikasvið á nokkr-
, um tónlistarhátíðum þar í
borg þar sem íslenskar
hljómsveitir spiluðu.
Þorsteinn
bjartsýrm á að há-
tíðin muni verða
fastur liður í náinni
1 framtíð og kynn-
ingin á henni skili
j sér í fjölgun ferða-
manna til íslands.
Eldar Ástþórsson, einn af
skipuleggjendum lceland
Airwaves „Reykjavík Grapevine
mun koma út alla næstu viku I
tilefni hátíðarinnar
Þorsteinn Stephensen býr í
Madrid en ferðast oft á milli
„Ég kem til landsins um helgina og
allt verður á útopnu næstu viku."
Heimsfrægi ljósmyndarinn Dean Freeman er eftirsóttur meðal stjarnanna í Bretlandi
Stjörnuljósmyndari tekur myndir af Garðari Cortes
„Nú, þegar það er kominn styrk- ,, * ' ^ lög," segir Einar.
„Nú, þegar það er kominn styrk-
ur í þetta frá F1 Group, þá erum við
búnir að ákveða að gefa plötuna út
sjálfir," segir Einar Bárðarson um
væntanlega plötu frá
stórsöngvaranum
Garðari Thor
Cortes. „Það
verður fyr-
irtæki mitt
í Lond-
on, Belie-
vermusic,
í kemur
til með
að gefa
plötuna
út þann
■BBPsW
Frú Hurley Elizabet
Hurleyereinaf
fyrirsætum Deans.
Dean Freeman Dean hefur meðal annars
myndaö VinnieJones og Beckham-hjónin.
5. febrúar í Bretlandi. Platan kemur
til með að heita Cortes og við erum
búnir að taka hana alla upp upp á
nýtt og það verða einnig nokkur ný
lög," segir Einar.
Fyrstu tónleikarnir með Garðari
og Katarinu Jenkins verða mánu-
daginn 23. nóvember en þeir tón-
leikar verða í London. „Við verðum
svo með einn frægasta ljósmynd-
ara heims, Dean Freeman, sem mun
taka myndir af Garðari fýrir plötu-
umslagið og kynningarefni," sagði
Einar.
Freeman gerði fræga ljósmynda-
bók með Beckham-hjónunum og
þess má geta að Dean hefur auk
þess ekki ómerkari listamenn á fer-
ilskránni en Neil Young, Elizabeth
Hurley, Spice Girls og Vinnie Jones.
Einar segir að það verði settur mikill
kraftur í kynningar á Garðari í Bret-
landi og það er greinilegt að Garðar
Thor á að verða næsti heimsfrægi ís-
lendingurinn.
myrdal@dv.is
Stefnir á toppinn Garðar Thor Cortes gefur
útplötuna Cortes þann 5. febrúar I Bretlandi.