Freyr - 01.11.1966, Blaðsíða 39
FREYR
489
HÚSMÆÐRAÞÁTTUR:
FRYSTIGEYMSLAN
Hvemig er hún notuð?
Frystihólf, frystiskópar og frystikistur, það eru geymslu-
hirzlur og geymslustaðir matvœla nú. Tunnur, keröld, kagg-
ar og kollur er að mestu horfið, þ\rt að nú er lítið notað af
söltuðum mat og súrsuðum.
Hvernig eru þau notuð þessi nýtízku geymsluskilyrði?
Eru þau notuð rétt? Um þetta mó spyrja og sjólfsagt segir
hver fyrir sig: Auðvitað.
Þetta er órannsakað mól hér, en húsmœðrafélögin ó
Fjóni hafa lótið gera rannsóknir um þetta efni og við skulum
frétta ögn um hvað þœr athuganir sýndu, en fró því segir
KAREN BROHOLM í Húsmœðrablaðinu.
Samband búnaðarfélaganna á Fjóni lét fara
fram athuganir á nýtingarfyrirkomulagi
frystibúnaðar í stiftinu, og til þess að fá
glöggt yfirlit yfir það skyldu húsmæður
færa bók yfir frystigeymslur sínar, hvenær
þær settu vörur í frystingu, hvaða vörur og
hve mikið, og svo hvenær þær tóku vörurn-
ar úr frosti. Eyðublöð voru útbúin í fernu
lagi, fyrir: kjöt, grænmeti, ávexti og brauð.
Þátttakendur voru 85 húsmæður, þar af
75 í sveitum. Fjöldi heimilisfólks var breyti-
legur, eða frá 1,8—6,7 einingum (miðað við
fullvaxið fólk en börn metin í hlutfalli við
fullorðna).
Stærð jrystigeymsla.
Frystigeymslur voru frá 150—500 1 að stærð
eða 302 1 að meðaltali, en þetta er minna en
reiknað er með að hæfilegt sé, því að talið
er viðeigandi 100 1 á mann. Sumar húsmæð-
ur létu í ljós viðhorf sín og töldu, að þær
hefðu of litlar kistur (skápa §ða hólf).
Töldu allmargar, að ókunnugleiki á notkun
þessara tækja hafi valdið því, að of lítið
rými var valið í upphafi og nauðsynlegt
væri að auka það.
Hvaða vörur jóru í jrysti?
Sú húsmóðir, sem notaði kistu sína bezt,
hafði 5,6 manns á fæði og kista hennar var
365 1, en sú kona, er nýtti geymslu sína lak-
ast hafði 2,1 á fæði og 285 1 kistu.
Þegar reiknað var rafmagn, vextir og af-
skrift af frystibúnaði sýndi það sig, að kostn-
aður á hvert kg geymdrar vörur var aðeins
40 aurar þar sem bezt var nýting, en um 4
krónur á kg þar sem hún var lökust.
Allar húsmæður höfðu kjötvörur 1 frysti,
83 frystu ávexti og grænmeti og 73 settu
brauð í frysti. Vörumagn á einingu var sam-
tals 79,4 kg og skiptist þannig:
Kjötvörur ................. 55,5 kg
Grænmeti ................... 6,9 —
Ávextir .................... 9,3 —
Brauð ...................... 7,7 —
Af ávöxtum voru það aðallega ber og epli,
en af grænmeti: baunir, ertur, kál og spínat,
sem sett var í frysti. Tilbúnir miðdegisrétt-
ir voru mjög sjaldan settir í frysti, en það er