Freyr - 01.01.1976, Side 23
Segjum, að 30 alhvítar gimbrar séu til alls og 25
þeirra séu settar á til að fjölga alhvíta fénu, og að á
sama tíma séu til 200 gular gimbrar og 25 þeirra settar
á. Þá er augljóst, að hægt er að koma við miklu úrvali
meðal gulu gimbranna með hliðsjón af afurðasemi
mæðra þeirra en svo til engu úrvali eftir móðerni meðal
alhvítu gimbranna.
Vegna þess hve fáa hrúta þarf að setja á árlega, var
hægt að viðhafa álíka strangt val eftir þunga og afurða-
semi meðal hvítra og gulra hrúta.
Það skal tekið hér sérstaklega fram, að rannsókn
þessi byggist á meðaltölum yfir 1280 ær undan 141 hrút
á 4 búum á 7 ára tímabili.
Niðurstöður, sem byggjast á svo miklum fjölda fjár,
hljóta að teljast ábyggilegar. Á það má jafnframt benda,
að þetta eru einu umfangsmiklu niðurstöðurnar, sem
liggja fyrir í landinu, um það, hvaða samband sé á milli
ákveðins eiginleika, sem á að bæta, og annarrar afurða-
semi sauðfjárins.
Þess er ennfremur rétt að geta, að áður hafa farið
fram rannsóknir á því, hvort ullarmagn og vænleiki
sláturlamba sé að einhverju leyti tengdar alhvítum eða
gulum lit, og hafa hvergi fundist merki þess, að svo sé.
Yfirlitsgrein um þær rannsóknir (á ensku með íslensk-
um útdrætti) er í prentun í tímaritinu „íslenskar land-
búnaðarrannsóknir“.
Verður vonandi hægt að geta þeirrar greinar hér síðar.
F R E Y R
13