Freyr - 01.01.1976, Side 24
Um sauðfjárrækt -
stjórnarkreppu
- og svolitið um sálfræði sauðfjár
Á ferðalagi um Austur-Skaftafellssýslu
var ég búinn að gista Egil ráðunaut, hitta
Suðursveitunga við fjárrag á Steinasandi
og skoða heykögglaverksmiðjuna nýju í
Flatey, framkvæmdir hennar og óravíð
ræktunarlönd, þegar ég sótti heim Elías
Jónsson á Rauðabergi.
Ekið er út af veginum á sléttunni austan
við Holtabæina og eftir óuppbyggðum vegi,
er stefnir á rishátt Viðborðs- eða Rauða-
bergsfjallið. Þú ekur inn undir fjallið,
þangað til það gnæfir yfir höfði þér, þar
er Fláarjökull, aðeins í seilingarfjarlægð,
þá finnur þú Rauðaberg inn á milli klappa-
borganna, þessara borga, sem víða eru í
Austur-Skaftafellssýslu og sannanlega eru
með eftirsóttustu bústöðum álfa. Bær Elí-
asar stendur næst fjallinu, þar býr hann
einn. Litlu framar er bær Sævars Kristins
Jónssonar. Þar er fegurst útsýn úr eldhús-
glugga á íslandi og þó víðar væri leitað.
Áður en ég er kominn alveg heim á hlað
hjá Elíasi, verður mér litið í átt að fjár-
húsunum. Þar stendur bíll, og brátt kemur
Elías í ljós. Hann hefur verið að huga að
ám, sem eru þar við húsin. Ég segi Elíasi
strax, að ég vilji eiga við hann viðtal um
sauðfjárrækt og fleira og bendi honum á
lítið apparat, sem ég get næstum falið í
hendi minni og ég ætli að nota til að geyma
minnisatriði í stað þess að skrifa niður
viðtalið. Elías tekur þessu ekki illa en lof-
ar þó engu og segir, að við skulum ganga
heim að bænum. Heima við íbúðarhúsið er
hópur ungra áa. Elías bendir mér á eina
veturgamla, sem hann segir, að sé undan
besta hrútnum, þeim, sem fær besta dóma
hjá öllum ráðunautum. Ærin var að mín-
um dómi falleg. Að dómi Elíasar kom hún
ekki sjóninni til, enda sagðist hann ekki
eiga margt undan honum. Hann gæti nefni-
lega ekkert notað hann. „Nú, er hann ó-
Viðtal við Elías á Rauðabergi
14
F R E Y R