Freyr - 01.02.1979, Síða 10
Tafla2. Sýnir, hvar kynbótahross, sem sýnd voru á landsmótinu, eru upprunnin á landinu, og
búsetu eigendanna.
Suður- Vestur- Norður- Austur-
Tafla 2. land land land land Alls
A. Stóðhestar:
Uppruni þeirra .................... 14 10 10 0 34
Búseta eigenda .................... 17 9 8 0 34
B. Hryssur:
Uppruni þeirra .................... 20 5 13 3 41
Búseta eigenda .................... 23 6 10 2 41
sýnir flestar gerðir, og er langt í land með að
fá lendina samstæða. Hin svera og þunga
bygging hrossanna okkar verður lengi að
færast í léttara og fríðara form, einkum er
hinn þykki og sterki háls og þungi bolur,
erfið snurfusi ræktunarmannsins.
Tveir stóðhestar voru sýndir bæði sem ein-
staklingar og með afkvæmum (Þáttur 722 og
Fáfnir 747). 78 hross voru valin til sýningar,
en 73 hlutu verðlaun, sem þýðir, að 5 hross
komu ekki til leiks. Fimm stóðhestar, sem
sýndir voru, eru undan hestum, sem ekki eru
Gáski 920 frá Hofsstöðum, Borg. F: Hrímnir 585, Vil-
mundarstöðum. Knapi: Gísli Höskuldsson.
ættbókarfærðir, og 9 eru undan slíkum
mæðrum.
í töflunni kemur í Ijós, að alls voru metnar
293 hryssur, bæði einstakar og með af-
kvæmum, og 42 þeirra eða 14% náðu þeim
kröfum að hljóta 1. verðlaun (ein hryssa með
afkvæmum hlaut 2. verðlaun). Þetta er mun
lægra hlutfall en hjá stóðhestum, enda ekki
sambærilegt, þar sem kröfurnar til þátttöku
þeirra voru mun vægari eins og nú verður
lýst.
Metnir voru 102 stóðhestar, bæði einstakir
og með afkvæmum, 4 vetra og eldri, og náðu
34 þeirra kröfunum til landssýningar eða
33%. Mörkin voru þessi: 4vetrahestarþurftu
að fá 7.70 stig í lágmarkseinkunn, 5 vetra
hestar 7,80 og 6 vetra hestar og eldri 8,0 stig
eða 1. verðlaun eins og allir aldursflokkar
hryssna þurftu að ná. Kynbótahross, sem
sýnd eru án afkvæma, og fá 8,00 eða meira í
einkunn, hljóta 1. verðlaun, og það mark var
sett fyrir allar hryssur einstakar og stóðhesta
6 vetra og eldri. Aðrar reglur gilda um af-
kvæmaverðlaun, eins og sagt verður brátt
frá.
Margir verðlaunagripir voru veittir efstu
hrossum í hverjum flokki auk áletraðra
verðlaunapeninga fyrir 1.-3. sæti í öllum
greinum mótsins. Þá voru verðlaunabikarar
gefnir af erlendum aðilum og loks gamal-
kunnir og fallegir farandgripir, sem vinnast
á hverju landsmóti, og yrði of langt upp að
FREYR
66