Freyr

Árgangur

Freyr - 01.02.1979, Blaðsíða 38

Freyr - 01.02.1979, Blaðsíða 38
Fuglafréttir. Á vissu skeiði eftir síðari heimsstyrjöldina var hænsnarækt í Danmörku stór í sniðum. Eggjamarkaður í Evrópu var nógur, og um nokkurár höfðu Daniryfir20 milljónir hæna í varpi og seldu í miklum mæli egg í allar áttir. En svo fór, að þær þjóðir, sem þá keyptu eggin, fóru sjálfar að auka framleiðslu af sama tagi, og nú er markaður Dana því nær horfinn, það er aðeins, að þeir framleiða nú egg til að fullnægja heimaþörfum, enda hafa þeir svo sem eina hænu á íbúa. Hins vegar framleiða þeir verulegt magn kjúklingakjöts til útflutnings og sú framleiðsla hefur aukist hröðum skrefum á síðari árum. Eggjaframleiðslan. Á ársfundi landsnefndar fuglaræktarmanna á síðasta hausti var gerð grein fyrir fram- leiðslumagni og efnahagslegum árangri alifuglaræktarinnar sl. ár, þ.e. 1977-78. Kom þar fram, að meðalársafurðir hæn- unnar höfðu aukist lítið eitt frá fyrra ári. Varpskeiðið hafði aðeins styst, eða um 6 daga, og var 457 dagar hjá meðalhænunni og hún skilaði á því skeiði 17,3 kg af eggjum. Sé reiknað með 20 eggjum í kg, segir þetta, að afurðirnar hafi verið 346 egg eða 0,75 egg á dag að meðaltali allt skeiðið. 94 Munurinn frá búi til bús var umtalsverður. Um það bil 10% bestu búanna höfðu varp- skeið 436 daga, og var framleiðsla þeirra 18,7 kg egg, en í hinum endanum, sem lakastan árangur sýndi, var varpskeiðið 390 dagar en framleiðslan að meðaltali aðeins 11,9 kg. Fóðurnotkun á skeiðinu var óbreytt á fugl frá síðari árum, þ.e. 120 g á dag. Á árinu varð fóðurnotkun betri en nokkru sinni fyrr, en hún komst rétt niður fyrir 3 kg á hvert kg af eggjum (2,97 kg). Kjúklingakjötsframleiðslan. Kjúklingakjötsframleiðslan gekk vel á árinu. Fuglarnir voru að meðaltali 44,6 daga gamlir við slátrun, samkvæmt tölum reikningabú- anna. Þeir vógu lifandi við afgreiðslu 1370 g að meðaltali, en það er veruleg þyngdar- aukning frá árinu 1974-75, þá vógu þeir 1200 g að meðaltali á líkum aldri. Fóðurnotkunin á hvern kjúkling var ná- kvæmlega eins og árið áður eða 2.05 kg á fugl. Það kom fram á fundinum, að árangur eggjaframleiðslunnar skilaði eðlilegu kaupi til framleiðenda, en kjötframleiðslan gerði það ekki, þar vantaði 37 aura danska upp á, að framleiðandinn fengi tilskilda greiðslu fyrir vinnu sína hverja klukkustund. FREYR

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.