Freyr - 01.02.1979, Blaðsíða 42
Stofnsetning og rekstur minkabúa.
Segja má, að íslenska minkaræktin sé að
hefja sig upp úr þeim öldudal, sem hún fór
fljótlega í, eftir að hún var leyfð 1969. Þau
minnkabú, sem eftir eru og tekist hafa á við
vandamálin, sem jafnan fylgja brautryðj-
endastarfinu, hafa sýnt það og sannað, að
minkaræktin á mikla framtíðarmöguleika
sem atvinnugrein í landinu.
Það, sem gerir minkaræktina áhugaverð-
asta fyrir okkur íslendinga, er, að við höfum
mikið og gott hráefni frá frysti- og sláturhús-
um, sem nýtist vel til skinnaframleiðslu, og
að veðurfarsáhrif spila hér ekki inn í, ásamt
því, að skinnin eru seld erlendis á opinberum
uppboðum, en ekki á innanlandsmarkaði.
Áhugi á þessari búgrein fer nú vaxandi,
bæði hjá mönnum til sjávar og sveita, og
ihuga nú nokkrir þeirra minkaræktina sem
framtíðarstarf. Minkaræktin skapar mikla
möguleika, þar sem hún hentar vel sem
sérhæfð búgrein í nýtískulegum byggingum,
eða sem aukabúgrein þar, sem nýttar eru
eldri byggingar, sem breytt hefur verið með
tilliti til birtu og loftræstingar.
Þar sem hráefnið frá frysti- og sláturhús-
um er undirstaða skinnaframleiðslunnar,
liggur beinast fyrir, að minkahald sé skipu-
lagt og byggt upp út frá fóðureldhúsunum
eða fóðurstöðvunum, sem eru í nánd við
þau. Frá fóðureldhúsunum yrði svo tilbúnu
fóðri ekið út til minkabúanna, annan hvern
dag yfir vetrarmánuðina, desember-apríl, en
sex daga vikunnar aðra mánuði ársins. Þá
kemur mjög vel til greina, að minkabændur
skiptust á um að sækja fóðrið til stöðvarinn-
ar, þegar fóðurnotkunin er lítil. Reiknað hef-
ur verið út, að ekki sé hagkvæmt, að akstur
með fóður frá fóðurstöð og til baka fari yfir
100—120 km, þegar notaður er meðalstór
vörubíll.
Áður en athugaður er kostnaðar- og
rekstrargrundvöllur minkabúa er rétt að
kynna sér reglugerðarákvæði um stofnun
þeirra, en ræða svo um sérhæfð minkabú og
minkabú sem aukabúgrein.
Úrdráttur úr reglugerð um stofnun á loð-
dýrabúi.
Þegar óskað er eftir að stofna loðdýrabú, er
landbúnaðarráðuneytinu send umsókn um
það efni. Umsókninni skal fylgja ítarleg
áætlun um byggingu loðdýrabúsins, um
gerð þess, stað, tæknilegan rekstur og
fjármál, svo og um hvaðan þau dýr koma,
sem fyrirhugað er að rækta á búinu. Enn
fremur skal fylgja umsókninni umsögn við-
komandi sveitar- og bæjarstjórnar. Að
fengnu áliti veiðistjóra um þessi gögn tekur
landbúnaðarráðuneytið ákvörðun um viður-
kenningu loðdýrabúsins. Viðurkenning
ráðuneytisins skal bundin þeim skilyrðum,
að loðdýraræktin hefjist þar ekki, fyrr en öll
gerð búsins er í samræmi við fyrrgreindar
áætlanir og fullnægir settum öryggisreglum
og tryggt er, að daglegum rekstri loð-
dýrabúsins veiti forstöðu kunnáttumaður
með a. m. k. eins árs reynslu í hirðingu, fóðr-
un og meðferð dýranna. Úttektin skal gerð af
veiðistjóra eða umboðsmanni hans. Ef lögð
erfram umsókn um byggingu loðdýrabús á
skipulagsbundnu svæði, skal landbúnaðar-
ráðuneytið leita umsagnar bygginganefndar
viðkomandi sveitarfélags um staðarval, áður
en byggingarleyfið erveitt. Eigi má veita leyfi
til að stofna minkabú með færri lífdýrum en
250 læðum. Til stækkunar loðdýrabús þarf
viðurkenningu landbúnaðarráðuneytisins,
og er óheimilt að nota viðbótarbyggingar
eða nýbyggingar, fyrr en úttekt veiðistjóra
eða trúnaðarmanna hans hefur farið fram.
98
FREYR