Freyr

Árgangur

Freyr - 01.02.1979, Blaðsíða 20

Freyr - 01.02.1979, Blaðsíða 20
Gjaldeyristekjur af unnum og óunnu hráefni frá sauðfé voru um 7 milljarðar árið 1977. eru í mestri hættu fyrir byggðaröskun á næstu árum, og þess vegna mundi mikill samdráttur þar hafa ófyrirsjáanlegar afleið- ingar, sagði Ketill. En sennilega getum við framleitt ódýrara dilkakjöt í þessum strjálbýlli landshlutum heldur en annars staðar. A hverju byggist það? Bændum tekst að ná meiri afurðum eftir hverja á, en það er að einhverju leyti að þakka betri sumarhögum. Þeir þurfa aftur á móti að leggja í dýrari og þar með fullkomn- ari byggingar, en fóðuröflun virðist ekki vera dýrari þrátt fyrir styttra sumar, því unnt er að afla mikilla heyja á undrastuttum tíma, þegar tíð er góð. Sauðfjárrækt og byggðastefna. Framtíðarstefna í sauðfjárrækt er í rauninni ákvörðun um byggðastefnu. En þá kemur það atriði til greina, að nettótekjur fara mikið eftir framleiðslumagni. Hins vegar hafa sauðfjárbændur orðið á eftir mjólkur- framleiðendum í því að tæknivæða búin, lík- lega af því að hægara er að beita tækninni við mjólkurframleiðslu. Bústærð og framleiðsla. Bú með mikla framleiðslu bera sig yfirleitt betur en bú með litla framleiðslu, en þá kem- ur byggðasjónarmiðið inn í dæmið, því til þess að halda landi í byggð þarf visst samfé- lag bænda. Það er of snemmt fyrir okkur að leggja árar í bát, þrátt fyrir offramieiðslu nú um sinn. Erfitt er að gera sér grein fyrir, hver þróunin verður á markaði fyrir sauðfjárafurðir. Sauðfjárrækt krefst mikils lands, og þess vegna eru líkur fyrir því, að með vaxandi landþrengslum í Evrópu dragi úr sauðfjárrækt þar og að búgreinar eins og svína- og alifuglarækt, sem gera minni kröf- ur til landrýmis, aukist. Við það ætti sam- keppnisaðstaða fjárbænda hér á landi að 76 FREYR

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.