Freyr - 01.02.1979, Blaðsíða 14
Uppdrátturinn sýnir hvernig má hugsa sér að breyta 100 kinda fjárhúsi og hlöðu í minkabú, fyrir 100 læður ásamt
tilheyrandi.
landbúnaði.rráðuneytinu send umsókn um
það efni. Umsókninni skal fylgja ítarleg
áætlun um byggingu loðdýrabúsins, um
gerð þess, stað, tæknilegan rekstur og
fjármál, svo og um hvaðan þau dýr koma,
sem fyrirhugað er að rækta á búinu. Enn
fremur skal fylgja umsókninni umsögn við-
komandi sveitar- og bæjarstjórnar. Að
fengnu áliti veiðistjóra um þessi gögn tekur
landbúnaðarráðuneytið ákvörðun um viður-
kenningu loðdýrabúsins. Viðurkenning
ráðuneytisins skal bundin þeim skilyrðum,
að loðdýraræktin hefjist þar ekki, fyrr en öll
gerð búsins er í samræmi við fyrrgreindar
áætlanir og fullnægir settum öryggisreglum
og tryggt er, að daglegum rekstri loð-
dýrabúsins veiti forstöðu kunnáttumaður
með a. m. k. eins árs reynslu í hirðingu, fóðr-
un og meðferð dýranna. Úttektin skal gerð af
veiðistjóra eða umboðsmanni hans. Ef lögð
er fram umsókn um byggingu loðdýrabús á
skipulagsbundnu svæði, skal landbúnaðar-
ráðuneytið leita umsagnar bygginganefndar
viðkomandi sveitarfélags um staðarval, áður
en byggingarleyfið erveitt. Eigi má veita leyfi
til að stofna minkabú með færri lífdýrum en
250 læðum. Til stækkunar loðdýrabús þarf
viðurkenningu landbúnaðarráðuneytisins,
og er óheimilt að nota viðbótarbyggingar
eða nýbyggingar, fyrr en úttekt veiðistjóra
eða trúnaðarmanna hans hefur farið fram.
í lögum um loðdýrarækt, 68/1969, og í
reglugerð um loðdýrarækt, 282/1969, ertil-
greint nánar um reglur varðandi loðdýrabú,
innflutning á loðdýrum, sóttkví og gerðir
loðdýrabúa.
70
FREYR