Freyr

Árgangur

Freyr - 01.02.1979, Blaðsíða 11

Freyr - 01.02.1979, Blaðsíða 11
telja (sjá mótsskrá). Verðlaunafé þykir nú orðið vel skammlaust, hækkar árlega með vísitölu búfjárræktar. í hlut stóðhesta komu 2.360 þúsund krónur og í hlut hryssna 1.328 þúsund kr. eða alls 3.688 þúsund kr. Allt verðlaunaféð er veitt samkvæmt búfjárrækt- arlögum og greitt af Búnaðarfélagi íslands, þegar um landsmót er að ræða. Afkvæmadómar hafa þyngst. Nýjar reglur um afkvæmadóma gengu í gildi vorið 1978, þar sem kröfur voru auknar um meðaltalseinkunn afkvæmahóps og hross- unum í hópnum fjölgað og allt miðað við tamin hross. Því má segja, að nýr hópur af- kvæmasýndra hrossa bætist nú við og hafi í sumar og muni í framtíðinni ganga undir töluvert þyngra próf en áður var. Það getur samt vel verið, að kynbótahross, sem áður voru dæmd fyrir afkvæmi, hefðu náð hinum nýju skilyrðum, og ekki er óhugsandi, að sumir vildu athuga á ný með verðlaunaða gripi sína, hvernig þeir stæðu sig. Er það einfalt reikningsdæmi, og vera má að ein- hver vildi fá þá viðurkenningu staðfesta, ef gripur hans næði hinu nýja og þyngra prófi. En hvað sem því líður, er þó möguleiki fyrir öll áður afkvæmasýnd hross að glíma við heiðursverðlaun, sem er nýtt þrep og sýnist ekki auðvelt að ná. Fram hefur komið í rituðu máli að undanförnu, að menn rugla saman þessum verðlaunaþrepum, en þar eru alls ekki sömu forsendur og því ekki hægt að bera saman verðlaunaflokkana og einkunnir hjá stóðhestum og hryssum, hvorki til 1. verðlauna né heiðursverðlauna fyrir af- kvæmi. Það er ólíkt t.d. að ná heiðursverð- launum, stóðhestar þurfa að ná 8,10 í eink- unn að meðaltali fyrir 12 afkvæmi, en hryssur 8,10 fyrir 4 afkvæmi. Það sjá allir, að munur er á í útreikningi, og því er ekki nein brú í því að bera saman einkunnir Sörla 653 og Fjaðr- ar 2826, sem hlutu 8,11 stig og 8,18 stig í sumar. Hitt er svo aftur athugandi, hvort möguleikar eru meiri fyrir stóðhest að ná heiðursverðlaununum vegna fjölda af- kvæma til að velja úr en fyrir hryssu, og hve miklu meiri þeir eru. Það má vafalaust reikna FREYR Þröstur 872 frá Teigi, Fljótshlíð. F: Hrafn 737 frá Krög- gólfsstöðum. Knapi: Aðalsteinn Aðalsteinsson. út hliðstæður í einkunnum, og þá getur komið annað út úr dæminu en með núgild- andi aðferð og einkunnirfengið annað gildi. Við lýsingu afkvæmasýndra stóðhesta á landsmótinu í sumar blasti við sú staðreynd, að stóðhestarnir í þeim flokki voru allir í eigu einstaklinga. Það má vafalítið kalla tilviljun, að engir stóðhestar voru frá hrossaræktar- samböndum. Eigendur sýningarhestanna hafa um alllangt árabil unnið að hrossarækt með góðu árangri, sem sannast á því, að góðhestar og kynbótahross frá þeim eru vel þekkt í fremstu röðum á mörgum mótum og sýningum undanfarinna ára. Það er því engin tilviljun með stöðu þeirra nú heldur rökrétt framhald eljusemi þeirra og áhuga á ræk- tunarstarfi og augljós árangur. Svo að vel takist til um afkvæmasýningu stóðhests, þarf ótrúlega langan og mikinn undirbúning og fjármagn, einkum ef menn þurfa að eiga undir öðrum með tamningar og þjálfun. Hrossaræktarsamböndin hafa erfiðari að- stöðu með stóðhesta sína. Afkvæmin eru dreifð og erfitt að fylgjast með þeim, stjórnarmenn bundir í vinnu og til þess ætlast, að þeir starfi að málum sam- 67

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.