Freyr - 01.02.1979, Blaðsíða 30
Votheyslögur
Hr. ritstjóri.
Þarsem allur heyfengurersumsstaðar
einvörðungu verkaður sem vothey,
kemur manni þessi spurning í hug:
Hvers konar efnasamsetning er í
þeim safa, er rennur frá
votheysgeymslum?
Hefur hann eitthvert fóður- eða
áburðargildi? Hér er miðað við, að
maurasýra eða önnur efni hafi ekki
verið notuð við votheysgerðina. Einnig
mætti hugleiða, hvort þessi lögur hefur
skaðleg áhrif á líf í ám og vötnum.
Sé svo, sýnist nauðsynlegt fyrir
bændur, er búa nálægt vatnsföllum,
sem veiði er í, að hafa samtök um að
hagnýta löginn, ef hann er þess virði,
ella koma honum í rotþrær, eins og
raunar ætti að gera með rennsli frá
heimilum, þar sem vitað er, að þvotta-
og ýmis hreinsiefni eru hættuleg fisk-
um í ám og vötnum.
Mér þætti vel þess virði, að Freyr
fræddi okkur nánar um ofangreindar
hugleiðingar.
Með vinsemd og virðingu
17. október 1978,
Ingimundur á Svanshóli.
•
Bréf Ingimundar hefur beðið alllengi
birtingar. Ástæðan er sú að leitað var til
Jóns Árnasonar, sem stundar nú fram-
haldsnám í fóðurfræði við Landbún-
aðarháskólann á Ási í Noregi og hann
beðinn um svar við spurningunum. Jón
hefur tekið þátt í rannsóknum Norðm-
anna á nýtingu votheyslagar til fóðurs.
Ingimundi er þakkað fyrir bréfið og
Jóni fyrir ítarlegt svar.
86
FREYR