Freyr

Árgangur

Freyr - 01.02.1979, Blaðsíða 36

Freyr - 01.02.1979, Blaðsíða 36
Útflutningsbætur í Danmörku. Það hafa fleiri en við áhyggjur vegna hins lága verðs, sem er á landbúnaðarafurðum í milliríkjaviðskiptum. í löndum, þar sem landbúnaður er háþróaður og um langan aldur hefur verið byggt á verulegum útflutn- ingi, er langt frá því, að fram- leiðslukostnaðarverð náist fyrir útfluttar búvörur. Eftir að Danir gengu í Efnahagsbandalag- ið, greiðir landbúnaðarsjóður þess með út- fluttum búvörum frá Danmörku. Árið 1977 fluttu Danir út smjör fyrir 1.710 milljónir danskra króna, þar af voru útflutn- ingsbætur úr landbúnaðarsjóðnum 669 milljónir kr., eða 39% af verðinu. Fyrstu 6 milligrömmum í hvert kg af fóðri fækkaði dauðsföllum svo, að þá varð tapið aðeins 0,8% innan hópsins. Svolítið magn hafði stórfelld áhrif. En það eru ekki aðeins vaxandi ungar, sem þurfa þetta vítamín. Líf í ungunareggjum er miklu öruggara þegar hænurnar hafa fengið fóður með ríkulegu magni biotíns og samaer að segja um fjósemi hænanna, varp þeirra verður öruggara en annars þegar þær fá nægilegt magn vítamínsins. Umræddur vísindamaður í Skotlandi heitir Whitehead. Hann hefur fullyrt, að réttast sé að blanda í hvert kg fóðurs handa hænuung- um 0,5-0,10 milligrömm. Aðrir vísindamenn hafa komist að raun um, að árangur er svo sem hér hefur verið greint síðan almennt var farið að gefa þessu efni gaum og blanda biótíni í allt fuglafóður. G. mánuði þessa árs hafa þeir flutt út smjör fyrir 958 milljónir danskra kr. Útflutningsbætur voru 272 milljónir kr. Nautgripakjöt fluttu þeir út fyrir 2.302 milljónir kr., útflutnings- bæturnar voru 230 milljónir kr. Korn var flutt út fyrir 882 milljónir kr., útflutningsbætur námu af þeirri upphæð 148 milljónum kr. Á síðastliðnu ári fluttu Danir út landbún- aðarafurðir fyrir samtals 19.384 milljónir danskra króna, þar í var útflutningur á minkaskinnum og ýmsum iðnvarningi úr landbúnaðarafurðum. Útflutningur á eigin- legum búvörum nam aftur á móti 18.014 milljónum kr., þar af voru útflutningsbætur 3.691 milljón kr., eða 20.5% af skilaverðinu. Þessi upphæð jafngildir 218 milljörðum ís- lenskra króna. Fyrstu 6 mánuði þessa árs hefur verið greitt með útflutningi danskra landbúnaðar- afurða sem svara til 128 milljarða íslenskra króna. Auk þess, sem Danir fá greitt með útflutningnum, fengu þeir á síðastliðnu ári upphæð, sem svarar67 milljörðum íslenskra króna úr landbúnaðarsjóði EBE, til stuðn- ings búvöruframleiðslunni. Aðallega var það vegna niðurgreiðslna á undanrennudufti, sem notað var í fóðurblöndur, og svo til geymslu á illseljanlegum landbúnaðar- afurðum. Dilkakjötsframleiðslan jókst um 1000 lestir árið 1978. Sauðfé á íslandi var 896.169 í ársbyrjun 1978 og 1.018.970 fjár var slátrað í haust er leið, þar af 930.509 dilkum og var það tæpum 60 þúsund dilkum fleira en árið áður. Dilka- kjötið varð nú 13.442 lestir eða 1000 lestum meira en 1977. Líklegt er að 5500 lestir af framleiðslu þessa árs verði seldar á er- lendum mörkuðum. 92 FREYR

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.