Freyr - 01.02.1979, Side 18
Rekstrarreikningur.
Seld skinn, 350 stk. á kr. 8.000 ......................... 2.800.000
Keypt fóður, 21.000 kg á kr. 45 ........................ 945.000
Vinnulaun við fóðrun og hirðingu ......................... 750.000
Kostnaður við skinnaverkun, 350 stk. á kr. 300 ........... 105:000
Annar kostnaður (rafm., sími, trygg. o. fl.) ............. 280.000
Vaxtagjöld (13% af kr. 600.000) .......................... 78.000
Vaxtagjöld (v/lífdýrakaupa 700.000, 13% vextir) .......... 91.000
Vaxtagjöld (v/rekstrarlána 500.000, 13% vextir) .......... 65.000
Afskriftir af byggingum 1.200.000, 5%) ................... 60.000
Afskriftir af vélum (kr. 740.000, 10%) ................... 74.000
Rekstrarhagnaður ......................................... 352.000
Kr. 2.800.000 2.800.000
mestu máli lengd og breidd húsanna, og
hvar eða hvort burðarsúlur og stoðir eru í
þeim. Búrlengjan og hreiðurkassinn eru 105
sm breið og komast þrjú búr fyrir á lengdar-
eininguna. Lengjunum þarf að koma hag-
anlega fyrir, svo góð vinnuaðstaða verði í
húsinu. Fóðurgangar eru bestir steyptir,
100—140 sm breiðir, en flórar eða skíta-
gangar eru oftast um 100 sm. Fyrir kemur að
ekki er hægt að hafaflórgang í húsinu, vegna
þrengsla, og verður þá að taka skítinn fóður-
gangsmegin, þegar mokað er út.
Uppdrættirnir sem hér fylgja, sýna,
hvernig gömlum gripahúsum er breytt í
minkabú. Þau fyrri voru áður 100 kinda fjár-
hús og hlaða, en þau síðari 18—20 kúa fjós
og hlaða. Hér á eftir kemur kostnaðar- og
rekstraráætlun við að koma minkabúi fyrir í
fjárhúsinu, en það tekur 100 líflæður og til-
heyrandi.
Áætlunin er byggð á efniskaupum og
vinnu við breytingar, ásamt öðrum kostnaði
og rekstri, sem fylgir stofnun á minkabúi í
desember 1978. Fylgt er sömu forsendum og
hjásérhæfðu minkabúi, hvað varðarfrjósemi
dýra, sölu skinna, fóðurverð, vexti og af-
skriftir o. fl.
74
kostur er ekki það góður, að minkastofninn
komist þar fyrir. Við slíkar aðstæður þarf
verðandi minkabóndi að sækja um undan-
þágu frá reglugerðinni um lágmarks
bústærð, eða fá heimild fyrir nýbyggingu eða
viðbótarbyggingu fyrir bústofninn.
Til þess að gera sér grein fyrir því húsrými,
sem minkabúskapur þarf, er reiknað með, að
læðueiningin (læða + 1/3 högni + 3.5
hvolpar) noti svipað flatarmál og kindin í
fjárhúsi og hlöðu, eða 1.5—1.7 m2. Breyting-
ará eldri byggingum, sem nota á fyrir minka,
eru aðallega fólgnar í bættri loftræstingu,
birtu og frárennsli undir búrum. Loftræst-
inguna má fá góða með því að láta net í
glugga og hurðir, koma fyrir strompum eða
opna kjölinn á þakinu. Birta í húsinu, þarsem
lífdýr eru, þarf að vera mjög góð, og má sam-
anlagt birtuinntak ekki vera undir 10% af
flatarmáli þess. í flestum tilfellum er auðvelt
að auka hana með því að bæta báruplasti í
þökin eða koma fyrir fleiri gluggum á út-
veggjum.
Þá hefur mikið að segja, að þegar í upphafi
sé komið fyrirfrárennslum í minkahúsunum,
svo þau haldist þurr og hrein Frárennslis-
barkar eða ristarstokkar geta hentað vel í því
sambandi og er þeim þá komið fyrir undir
búrunum eftir endilöngu húsinu.
Nokkuð er breytilegt, hvernig gamlar
byggingar nýtast fyrir minka, og skiptir þar
FREYR