Freyr - 01.02.1979, Síða 23
ÁRNI G. PÉTURSSON:
Veislumatur Svía
var grillað dilkakjöt frá íslandi.
í þessari grein segir Árni G. Pétursson, ráð-
unautur, fréttir frá 29. ársfundi Búfjárræk-
tarsambands Evrópu í Stokkhólmi 5.-7. júní
og fundi sauðfjárræktarráðunauta
Norðurlanda í Norður-Svíþjóð 8.-10. júní.
Ráðstefnugestir búfjárræktarsambandsins
voru um 500 talsins, þar af 3 íslendingar,
Þórarinn Lárusson frá Rannsóknastofu
Norðurlands, Akureyri, og Árni G. Pétursson
og Guðný Ágústsdóttir frá Búnaðarfélagi
íslands, Reykjavík.
Ráðstefnufulltrúar skiptust í 7 deildir, en
hver deild fjallaði um ákveðin svið búfjár-
ræktar. Þórarinn sat fundi í næringar- og
fóðrunardeild, en Árni í geita- og sauðfjár-
ræktardeild.
Framsögumenn í hverri deild skiptu tugum
og lögð voru fram pappírsgögn eftir hundruð
höfunda.
í geita- og sauðfjárræktardeild voru að
þessu sinni til meðferðar m. a. „samsetning
og gæði geitamjólkur“, ,,magn og stærð
fitukúla í sauðamjólk", „úthagabeit, fram-
leiðslugeta úthaga, náttúruvernd, og náttúr-
usköpun með sauðfjárbeit“, „tölvuuppgjör
og skýrsluhald sauðfjárræktarfélaga", og
„vefjasamsetning dilkafalla við mismunandi
þroskastig“.
Léttreykt, íslensk dilkaföll á borðum.
Stokkhólmsborg á víðar lendur úti í sveit, og
fóru fulltrúar í sauðfjárdeild dagstund í
skoðunarferð um sveitina til að sjá af eigin
raun, hversu borgin viðheldur landbúnaðar-
svæðum og náttúrufari landsins. Á úthaga
var þar viðhöfð víðtæk sauðfjár- og holdan-
autabeit til að halda í skefjum óæskilegum
gróðri í skóglendi og viðhalda opnum
svæðum, svo eðlilegurtrjávöxturgæti átt sér
stað. Á einum búgarði borgarinnar bauð
sænska fjárræktarsambandið til hádegis-
verðar undir berum himni. Á matseðli voru
léttreyktir dilkaskrokkar grillaðir í heilu lagi í
FREYR
79