Freyr - 01.02.1979, Blaðsíða 28
Myndirnar sýna „knosarahúsið" og leið grassins í
gegnum það.
Vélin tengist dráttarvélinni á venjulegan
hátt, þ. e. a. s. á þrítengi, knúin frá aflúttaki
viö 540 snúninga.
Þess má geta, aö hlífabúnaður er mjög
góður, auðvelt er að skipta um hnífa og
þægilegt að skipta úr og í flutningsstöðu.
Knosarinn er frekar einfaldur. Helstu hlut-
ar hans eru knosarahús, sem byggt er aftan á
þyrluna, gegnum það gengur möndull, sem á
eru stálfjaðrir. Fremst í þessu sama húsi er
stillanlegt spjald, sem grasið merst við, og
ræður stilling þess hversu mikið vélin mer
grasið. Stillingu á því er stjórnað utan frá
með stillanlegu handfangi.
Þegar unnið er með vélinni, grípa fjaðrirn-
ar grasið jafnóðum og slá því upp í spjaldið,
og svo yfir möndulinn og aftur úr vélinni. Við
þessa meðferð merst grasið nokkuð, án þess
þó að saxast niður.
Hér gerist það, sem mestu máli skiptir,
himnan, sem umlykuryfirborð jurtanna, rifn-
ar og springur, en við það gengur útgufun
mun hraðar, en samkvæmt minni reynslu
styttir það þurrktímann um þriðjung.
FREYR