Freyr - 01.02.1979, Side 29
Slátturþyrtan í flutningsstöðu (Ljósm. Hlöðver Oiðríksson).
Einhver kynni að óttast skemmdir af völdum
aðskotahluta ef þeir lentu í „knosaranum".
Sú hætta er þó ekki mikil, þar sem tvö öryggi
eru á vélinni, annars vegar er vartengsli í
drifskafti og hins vegar öryggisnagli í drif-
búnaði knosarans.
Slegnirvoru liðlega 50 hektararmeð minni
vél, án bilana. Meðfylgjandi myndir eiga að
skýra málið enn frekar.
Að endingu vil ég segja þetta: Sé til sú
tækni að flýta megi heyþurrkun til muna, þáá
hún erindi til íslenskra bænda.
Lán frá Stofnlánadeildinni 1978 voru
hlutfallslega lægri en árið áður
Stofnlánadeild lánaði röskan tvo og hálfan
milljarð króna til landbúnaðarins á s. I. ári og
er það 6.73% hækkun frá 1977. Miðað við þá
verðbólgu, sem verið hefur að undanförnu
eru því lán frá Stofnlánadeildinni í raun og
veru mun lægri en árið áður. Vegna fjár-
skorts breytti Stofnlánadeild lánareglum
sínum og lánaði nú aðeins fé til endur-
nýjunar húsa. Fjárfestingaráhugi bænda
mun hafa minnkað nokkuð vegna ríkjandi
markaðskreppu á búvöru.
Alls veitti Stofnlánadeildin 1402 lán sem
námu 2.514.879.000 kr. og skiptust þau
þannig:
Til vinnslustöðva ... 21 lán kr. 355.369.000
— ræktunarsambanda 5 — — 45.282.000
— dráttarvélakaupa .. 394 — — 327.963.000
— útihúsabygginga
og ræktunar ..... 559 — — 1.125.696.000
— bústofnskaupa ...106 ------- 112.862.000
— minkabúa ........ 1 -------- 10.000.000
— byggingar fbúðar-
húsa í sveitum .... 184 — — 309.004.000
— jarðakaupa ...... 77 — — 162.325.000
Þess er að geta, að lífeyrissjóður bænda
veitti 55 lán til byggingar íbúðarhúsa, alls kr.
66.378.000.
Bústofn landsmanna
var í ársbyrjun 1978
nautgripir ...................... 62.677
sauðkindur ..................... 896.169
hross ........................... 49.528
svín ............................. 1.177
alifuglar ...................... 277.726
minkar ........................... 9.020
Mjólkandi kýr voru 36.859 og ær 733.232.
FREYR
85