Freyr - 01.02.1979, Qupperneq 31
JÓN ÁRNASON:
Lögur frá votheyi
Þegarverkað er í vothey, án þess að beittséforþurrkun, myndast við verkunina
lögur, sem rennur burt. Lagarmagnið er mjög háð þurrefnismagni grassins,
sem sett er í votheysgryfjuna, og því hvílíka meðhöndlun grasið hefur fengið.
Lítið hefur farið fram af rannsóknum hérlendis á þessum vökva, ef frá er skilin
rannsókn Tryggva Eiríkssonar, sem fjallaði um áhrif þurrefnis og söxunar á
magn og samsetningu lagarins. í Noregi hafa hins vegar verið framkvæmdar
nokkuð umfangsmiklar rannsókniráþessum legi, magninu, efnasamsetningu,
og hvernig megi nýta hann þannig, að hann valdi ekki mengun í ám og vötnum.
Ástæðan til þess, að svo mikið hefur verið unnið að þessum málum þar í landi,
er, að sett hafa verið lög, sem banna, að slíkum legi eða skolpi sé hleypt út í
vatnasvæðin, vegna þess að mengun af þess völdum var orðin alvarlegt
vandamál á sumum stöðum.
Magn og efnasamsetning.
Magn þess lagar, sem myndast við votheys-
gerð, er mjög misjafnt, en geturfarið allt upp
í 30 — 40% af því sem inn er látið. Þurrefnis-
prósenta hráefnisins, sem lagt er í gryfjuna,
er það, sem mestu ræður, og eru áhrif þess í
grófum dráttum sýnd á mynd 1.
FRARENNSU,'/.
Mynd 1. Áhrif þurrefnisinnihalds í grasi á lagarmagn
við votheysgerð. (Saue, 1975).
Lögun votheysgryfjunnar hefur nokkuð að
segja um lagarmagnið. Sé hráefnið hakkað
eða marið áður en það er sett í gryfjuna,
eykur það lagarmagnið vegna þess, að þá á
vökvinn greiðari leið út úr frumunum.
íblöndun sýru eykur einnig magnið vegna
þess, að sýran veldur sprengingu plöntu-
frumanna.
Meiri lögur kemur úr turnunum en flat-
gryfjunum, því meira, sem meira er fergt.
Mestur hluti lagarins (70 — 80%) sígur úr
heyinu fyrstu vikuna eftir, að látið er í gryf-
juna, en úr stórum gryfjum sérstaklega sígur
úr heyinu í langan tíma, oft svo vikum skiptir.
Þetta gerir það að verkum, að nauðsynlegt er
að hafa stóra tanka undir löginn, ef geyma á
hann utan gryfjunnar nokkurn tíma. En það
er nauðsyn, ef nýta á hann sem fóður, því
FREYR
87