Freyr - 01.02.1979, Side 32
g/1 OOg þurrefnis í safa
magniö, sem kemur fyrstu .vikuna, er svo
mikið, að engin tök eru á því, að gripirnir
torgi því.
í Noregi hafa reyndar verið gerðar tilraunir
með að geyma löginn í gryfjunni, þar til
skepnur eru komnar á hús og fóðra á með
votheyinu, og hafa þær gefist vel. Slík
geymsla krefst þess, að gryfjan sé alveg þétt,
og þannig frágengin að innan, að hún þoli
sýrur, en töluvert er af þeim í leginum og það
jafnvel, þó að ekki hafi verið notuð maura-
sýra við votheysgerðina.
Efnasamsetning safans, sem rennur frá
votheysgeymslum, er mjög breytileg. Þur-
refnisprósentan sveiflast frá 3 — 8%, en al-
gengast mun, að hún sé um 5%. Af þurrefn-
inu eru 70 — 75% lífrænt efni, en 25 — 30%
aska. Reikningslega eru um 20% af þur-
refninu hráprótein, en þetta er þó að mestum
hluta einfaldari köfnunarefnissambönd, en
aðeins að litlu leyti eiginlegt prótein.
Sá hluti lífræna efnisins, sem ekki inni-
heldur köfnunarefni, er mjög mismunandi,
allt eftir því hve ferskur safinn er. Ef safinn er
ferskur, er sykur mest áberandi í honum, en
sé hann hins vegar farinn að eldast eða hefur
runnið seint af, eru ýmsar sýrur, svo sem
mjólkursýra, ríkjandi í honum. Þetta kemur
glöggt fram í töflu 1.
Aska er eins og áður segir um 25 — 30% af
þurrefninu, en hún samanstendur af mörg-
um mismunandi efnum, en þau mikilvæg-
ustu eru eftirfarandi, en tölurnar um magn
þeirra eru meðaltöl norskrar efnagreiningar
á legi frá votheyi (Saue, 1975):
Kalíum .......................... 10
Fosfór .......................... 1
Kalsíum ........................... 1,5
Magníum ........................... 0,6
Með tilliti til áburðar er hið mikla kalíum-
innihald áhugavert, en að öðru leyti skiptir
það ekki miklu máli, þó svo að það sé ekki til
neinna bóta, ef nota á safann sem fóður.
Votheysiögur sem áburður.
Votheyslögur inniheldur umtalsvert magn af
kalíum, en auk þess nokkurt magn af hinum
aðaláburðarefnunum, köfnunarefni og
fosfór. Tafla 2 sýnir samanburð á innihaldi
áburðarefna og þurrefnis í votheyslegi og
mykju, sem er blönduð hlandi og vatni.
Tafla 2. Þurrefnisinnihald og innihald
áburðarefna í blandaðri mykju og vot-
heyslegi (Pestalozzi, 1972, og Lingstad,
1972).
Magn efna í
% af þurrefni
Þurrefni
% N P K
Votheyslögur 3,84 4,2 1,0 10,0
Blönduð mykja 9,3 5,16 0,9 3,8
Ef borin eru saman mykjan og lögurinn, sést,
að mykjan inniheldur töluvert meira af köfn-
unarefni en lögurinn, en á hinn bóginn inni-
Tafla 1. Áhrif geymslu á efnainnihald lagar úr votheysgryfjum g/100g safa
Töppunartími Þurr- efni Sykur Smör- sýra Propion- sýra Ediks- sýra Mjólkur- sýra Maura- sýra
Strax eftir
hirðingu 3,87 1,34 0,00 0,00 0,03 0,12 0,51
Eftir 4 mán 5,88 0,30 0,12 0,15 0,50 1,59 0,37
88 FREYR