Freyr - 01.02.1979, Qupperneq 43
í lögum um loðdýrarækt, 68/1969, og í
reglugerð um loðdýrarækt, 282/1969, er til-
greint nánar um reglur varðandi loðdýrabú,
innflutning á loðdýrum, sóttkví og gerðir
loðdýrabúa.
Nyt dönsku kúnna.
Þegar eðlileg fóðrunarskilyrði komust í lag
eftir 1945 í Danmörku, var meðalnyt kúnna í
eftirlitsfélögunum árlega 4300-4500 kg. í
vissum búðum var um þær mundir staðhæft,
að með miklu betur skipulagðri fóðrun væri
unnt að auka afurðir kúnna, til þess hefðu
þær arfgenga hneigð.
Þetta var prófað í tilraunum og sannað um
leið. Síðan hafa afurðir aukist að mun og
meðaltalstölur innan hópsins, sem var í eftir-
litsfélögunum á síðasta ári, sýndi metafurðir,
en þær voru: 5332 kg mjólk með 4,41 % fitu.
Þetta er ekki teljandi meira en mest hefur
áður gerst, en metafurðir samt. q.
Mjólkurframleiðslan jókst á sl. ári en neysl-
an minnkaði.
Innvegin mjólkí mjólkursamlögum mun hafa
orðið um 4% meiri á sl. ári en 1977, eða
rúmar 120 millj. Itr. Nýmjólkursala sem nam
um 45.6 millj. Itr. dróst saman um 0.7%, en
síðustu mánuðiársinsseldistmjólkin nokkru
betur. Undanrenna seldist mun verr en 1977
og minnkaði salan um 14%. Smjörsala jókst
um rúm 250 tonn á árinu og varð alls um 1520
lestir. Nokkur söluaukning varð einnig á
smjöri síðustu mánuði ársins. Ostasala jókst
um nokkur prósent eða tæp 2% á bræddum
ostum en rúm 5% á mjólkurostum.
Nú um áramótin voru ,,fjöil“ bæði af ostum
og smjöri eða um 1350 lestir af smjöri og um
1200 lestir af osti. Með sömu mjólkur-
framleiðslu og neyslu má búast við 2000
lesta smjörfjalli næsta haust.
Mjólkursamlögin einbeita sér nú að því að
framleiða ost. Verið er að endurnýja þrjú
mjólkurbú, þ. e. á Akureyri, í Borgarnesi og á
Egilsstöðum.
Samkvæmt bráðabirgðaheimildum frá
Upplýsingaþjónustu landbúnaðarins voru
mjólkurframleiðendur um 2500 sl. ár. Þeir
lögðu inn að meðaltali um 48000 lítra.
FREYR
99