Freyr - 01.04.1990, Qupperneq 36
ÁLYKTUN
Búnaðarþing hefur fengið til
umsagnar drög að frumvarpi til
laga um Búnaðarmálasjóð og
framleiðendagjald til Stofnlána-
deildarlandbúnaðarins, sem unnin
hafa verið af stjórnskipaðri nefnd.
Búnaðarsamböndin í landinu og
Búnaðarfélag íslands áttu ekki
fulltrúa í þessari nefnd, þrátt fyrir
óskir þar um, og verður að telja
það afar óeðlileg vinnubrögð í máli
sem þessu.
Búnaðarþing harmar, að í
nefndum frumvarpsdrögum er
ekki gert ráð fyrir tekjustofni til
félagslegrar starfsemi Búnaðarfé-
lags íslands, svo sem ályktað hefur
verið um á Búnaðarþingi, mál nr.
34 frá 1988. Hins vegar getur Bún-
aðarþing eftir atvikum fallist á þær
hugmyndir, sem fram koma í fyrir-
liggjandi frumvarpsdrögum, með
þeim breytingum þó, að hlutur
búnaðarsambandanna verði auk-
inn, frá því sem þar er gert ráð
fyrir, og þau látin greiða sameigin-
lega kostnað annars vegar af Bún-
aðarþingi og hins vegar af störfum
milliþinganefnda Búnaðarþings.
Því leggur Búnaðarþing til, að
gerðar verði eftirfarandi breyting-
ar á 4. grein frumvarpsdraganna:
% gr. af flokki B
skv. 2. gr.
Til búnaðarsambanda verði 0.575
Til Stofnlánadeildar land-
búnaðarins verði 0.175
Búnaðarþing felst ekki á, að
hægt sé með reglugerð að ákveða
gjald skv. f. lið í flokki B í 2. gr.
frumvarpsdraganna. Því verði
nefndur f. liður í flokki B, settur
sem c. liður í flokki A.
Þá telur Búnaðarþing, varðandi
gjaldtöku skv. C-lið 2. greinar
frumvarpsdraganna, að tryggja
beri greiðslur til Lífeyrissjóðs
bænda. Einnig telur Búnaðarþing,
að ekki beri að taka gjald af riðu-
bótum, nema til Lífeyrissjóðs
bænda. Búnaðarþing álítur nauð-
synlegt, að festa beri tekjustofn
búnaðarsambandanna, þannig að
ákvæði 4. greinar frumvarpsdrag-
anna um árlega tilkynningaskyldu
vegna gjaldtöku til búnaðarsam-
bandanna falli niður. Eftir standi
tilkynningaskylda vegna gjaldtöku
til búgreinasambanda skv. sömu
grein.“
Erindi Fjárhagsnefndar um sam-
eining Búnaðarfélags Islands og
Framleiðsluráðs landbúnaðarins
ÁLYKTUN
Búnaðarþing 1990 samþykkir að
óska eftir við stjórnir Búnaðarfé-
lags íslands og Framleiðsluráðs
landbúnaðarins að fram fari við-
ræður milli þessara stofnana um
möguleika á sameiningu þeirra eða
náinni samvinnu.
Jarðræktarnefnd:
Bjarni Guðráðsson, formaður,
Jón Kristinsson, ritari,
Egill Jónsson,
Einar Þorsteinsson,
Jósep Rósinkarsson.
Erindi Búnaðarsambands Austur-
lands um heftingu landbrots og
varnir gegn ágangi straumvatna
ÁLYKTUN
Búnaðarþing 1990 leggur mikla
áherzlu á, að hraðað verði bygg-
ingu varnargarða þar sem straum-
vötn brjóta land og eyða gróður-
lendi.
Því skorar Búnaðarþing á land-
búnaðarráðherra og fjárveitinga-
nefnd Alþingis að hlutast til um að
veitt sé aukið fjármagn til þessa
brýna verkefnis.
GREINARGERÐ
A fjárlögum þessa árs eru veittar
kr. 24 milljónir til varnargarða og
eftir skerðingarákvœði lœkkað í 22
milljónir. Mál þetta barst frá Bún-
aðarsambandi Austurlands þar
sem lýst er áhyggjum vegna
skemmda frá fallvötnum. Er veitt
um 4 milljónum til vatnavarna á
Austurlandi en kostnaðaráœtlun til
að fyrirbyggja skemmdir í þessum
landshluta erkr. 48 milljónir. Nú er
vitað að þörf er mikilla aðgerða á
þessu sviði í öðrum landshlutum.
Víðar er varnarstarfmjög brýnt, og
seint mun vinnast þetta mjög þýð-
ingarmikla starf ef fjárveitingar
verða ekki auknar verulegafrá því,
sem nú er.
Frumvarp til laga um breytingu á
lögum nr. 47 16. apríl 1971 um
náttúruvernd, lögum nr. 20 30.
apríl 1986 um Siglingamálastofn-
un ríkisins og ýmsum lögum, er
varða yfirstjórn umhverfismála
ÁLYKTUN
Búnaðarþing skorar á Alþingi
að vanda betur undirbúning og val
á þeim verkefnum, sem umhverfis-
ráðuneyti er ætlað að vinna.
Þingið leggur ríka áherzlu á, að
atvinnuvegirnir beri ábyrgð á starf-
semi sinni gagnvart umhverfinu,
undir eftirliti umhverfisráðuneytis
eða stofnana, sem lúta stjórn þess.
Þar sem þessara grundvallar-
sjónarmiða hefur ekki verið gætt
og mikill ágreiningur er um málið í
þjóðfélaginu, leggur Búnaðarþing
eindregið til, að málið verði athug-
að nánar og reynt að ná um það
sátt.
Verði Alþingi ekki við þessari
ósk treystir Búnaðarþing því, að
eftirfarandi breytingar verði gerð-
ar á frumvarpinu:
Niður falli orðin „vinna að gróð-
urvernd og" í 1. mgr. 1. greinar
frumvarpsins og einnig falli niður
orðin „verndun og “ í 2. mgr. sömu
greinar. Ennfremur falli niður sfð-
asta málsgrein 1. greinar „þrátt
fyrir ákvæði laga um landgræðslu -
o.s.frv. til loka greinarinnar.
GREINARGERÐ
Við athugun á þessu máli í Búnað-
arþingi varð fulltrúum þess Ijóst, að
í þessu frumvarpi um tilfœrslur
verkefna milli ráðuneyta eru
ákvœði, sem munu leiða tilþess, að
dómi þingsins, að starfsemi stofn-
ana sem að hluta eru fœrðar undir
nýja húsbœndur, verður ómarkviss
276 Freyr
7. APRlL 1990