Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.2000, Blaðsíða 2

Freyr - 01.06.2000, Blaðsíða 2
t Sókn og vöm erfðabreyttra nytjajurta ESB heimilar hvorki ræktun né viðskipti með neinar nýjar erfðabreyttar nytja- jurtir né afurðir úr þeim meðan beðið er eftir nýjum reglum sem væntanlegar eru þar um. Ræktun erfðabreyttra jurta í heiminum vex hins vegar hratt, jafnframt því sem kröfur vaxa um að halda vel aðskildum erfðabreyttum afurð- um og hefðbundnum. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hefur lengi verið einn helsti talsmaður þess að nýta erfðabreytingar við ræktun nytjajurta í Evrópu. Nýleg ummæli hans benda hins vegar til að hann hafi að einhverju leyti skipt um skoðun, en hann hefur nýlega í fyrsta sinn látið í ljós að vera megi að erfða- breyttum jurtum fylgi áhætta varðandi heilsu fólks og um- hverfi. Mikil andstaða er gegn erfðabreyttum nytjajurtum í Bretlandi og stjórnarandstaðan hefur nýtt sér það til að gagn- rýna ríkisstjórnina. Flest stór matvælafyrirtæki og verslana- keðjur í Bretlandi hafa snúið baki við erfðabreyttu hráefni í vörum sínum. I Þýskalandi hefur heilbrigðis- ráðherra, Andrea Fischer, sem er úr flokki Græningja, bannað um sinn innflutning og ræktun á erfðabreyttum maís. Bannið er rökstutt með því að fram hafi komið nýjar sannanir fyrir því að erfðabreyttar jurtir geti valdið skaða á Monark fiðrildinu og fleiri skordýrum ásamt áhættu á því að smáverur í jarðvegi geti skaðast. Áður höfðu Frakkland og Austurríki ákveðið takmarkan- ir á ræktun erfðabreytts maís. Nýjar reglur væntanlegar Innan ESB er nú unnið að því að breyta reglugerð sambandsins nr. 90/220 um viðurkenningu á erfðabreyttum lífverum. Ný til- laga er nú komin til annarrar um- ræðu í þingi ESB. Þingið hefur tekið þá stefnu að það eigi að setja skýrar reglur varðandi ábyrgð við ræktun erfðabreyttra jurta sem og skýrar reglur um merkingu þeirra. Þá vill þingið herða reglur um mat á áhættu sem gera verður við afgreiðslu ræktunarleyfa. Eftir aðra umræðu á þinginu fer málið fyrir ráðherraráðið. Ef þingið og það eru ekki sammála um afgreiðslu þess þarf að fara fram málamiðlun áður en reglum- ar taka gildi. Það er því fyrst nk. haust sem hinar nýju reglur verða tilbúnar. Fram að því liggur málið í salti og engar nýjar erfðabreyttar teg- undir verða leyfðar. Þessi biðtími er pólitísk ákvörðun sem tekin var í júní á sl. ári. Bandaríkin óróleg Meðferð þessa máls innan ESB hefur haft áhrif á bandarískan landbúnað, en þarlendir bændur eru ráðvilltir um það hvort þeir eigi að rækta erfðabreyttan maís og sojabaunir á þessu ári. Bænd- umir hafa nú ásakað útflutnings- fyrirtæki og ræktunarsamtök um að hafa verið hrokafull og hunsað vilja neytenda í ESB. Afleiðingin er að innkaupafyrirtæki í ESB snúa baki við bandarískri fram- leiðslu, segja bændumir. Stórir evrópskir kaupendur snúa sér til suðuramerískra út- flutningsfyrirtækja. Afleiðingin er sú að bandarískri bændur sitja uppi með skaðann þar sem verð á maís og sojabaunum lækkar þegar útflutningurinn dregst saman. Samtök bandarískra maísrækt- enda em mjög óánægð með það hvemig ríkisstjómin og útflutn- ingsfyrirtækin taka á þessum mál- um. Það þarf að hlusta á kröfur markaðarins, segja talsmenn þeirra. Stór hluti neytenda vill ekki erfðabreyttan maís og soja, hvers vegna hlusta fyrirtækin ekki áþað? Hröð aukning Þrátt fyrir neikvæð viðbrögð vaxa ræktun og viðskipti með erfðabreyttar nytjajurtir mjög hratt. Árið 1996 vom þær rækt- aðar á 1,7 millj. hekturum í heim- inum en árið 1999 á 39,9 millj. ha. Bandaríkin em þar stærst með um 72% framleiðslunnar. Af öðr- um löndum, sem rækta erfða- breyttar nytjajurtir, má nefna Argentínu, Kanada, Kína, Ástra- líu, Suður-Afríku, Mexikó, Rúm- eníu og Úkraínu. Tilraunaræktun á erfðabreyttum nytjajurtum fer fram í flestum löndum ESB, en ræktun í stómm stíl, til að setja á markað, fer einungis fram í Frakklandi, Spáni og í Portúgal. (Intemationella Perspektiv nr. 11/2000). 2 - FREYR 6/2000

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.