Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.2000, Blaðsíða 36

Freyr - 01.06.2000, Blaðsíða 36
- Blandaöur gróöur grasa - Vallarsveifgras Knjáliöagras Varpasveifgras - Kal og aðrar eyöur 2. mynd. Gróður á kalskellum. Breyting á hlutdeild gróðurs 1970-1974. a. Túnið ómeð- höndlað .........9% haugarfi b. Sáð í túnið með túnsáðvél án jarðvinnslu .....6% haugarfi c. Túnið tætt með tætara einu sinni og sáð í það . . . .19% haugarfi d. Grasrótin tætt með hjólmúgavél og sáð í landið með túnsáðvél .......4% haugarfi e. Túnið plægt og herfað og sáð í það með tún- sáðvél...........80% haugarfi Þetta sýnir hve mikið var af haugarfa í reitunum sem plægðir voru og herfaðir. Á reitunum, sem ekki höfðu verið meðhöndlaðir, var arfi í kalskellum. Illgresi var ekki eytt úr tilraun- inni með illgresiseyði og þess vegna var arfi ríkjandi gróður í sumum liðum. Væntanlega hefðu niðurstöður orðið aðrar ef arfanum hefði verið eytt. Það er nauðsynlegt að halda áfram rannsóknum á endurvinnslu túna, vegna þess að mörg mýrartún gefa minni uppskeru en hægt er að sætta sig við. Rétt er að minna á að um 70% af túnum landsmanna er á framræstri mýri. Endurvöxtur gróðurs í kalskellum, tilraun nr. 268-70 Það var ekki mikið kal í túnunum á Hvanneyri á árunum 1966-1970. Þó voru á víð og dreif þónokkrar stórar kalskellur. Gerð var athugun á gróðri einnar slíkrar skellu árin 1970-1974, en rannsóknir árið 1973 féllu niður. Það vom gerðar 2400 gróðurákvarð- anir á skellunni hvort ár. Niðurstaðan kemur fram á 2. mynd. Blandaður gróður voru gróður- viskar, sem var blanda af vallar- sveifgrasi, varpasveifgrasi, tún- vingli, knjáliðagrasi, snarrótarpunti og língresi. Það eru allt grasteg- undir sem loka kalskellunum fyrir utan snarrótarpuntinn. Það má segja að 4. tafla sýni að kal- árið 1970 hafi kalskellur og varpa- sveifgras verið 22% af reitnum en fjórum ámm seinna 3,5%. Vallar- sveifgras jók jafnframt hlutdeild sína. Þetta er í samræmi við það sem Bjami E. Guðleifsson (1986) hefur skrifaði: „Reynslan er sú að tún sem hafa verið gróin vallarsveifgrasi gróa upp furðu fljótt, en uppskeran af þeim verður þó aldrei sambærileg við nýræktir að magni og gæðum og oft mikill arfi og varpasveifgras fyrstu árin.“ Sandi blandað í mýri, tilraun nr. 83-59 Tilraunin var gerð á mýrarjörð austan við Grænhól. Sandur var tættur saman við jarðveginn í júní 1959 og sáð MR-blöndu frá 1959, sem áður er getið um. Áburður 1959: 80 kg/ha N, 87,4 kg/ha P og 83 kg/ha K. Áburður 1960-1963: 1 i 4. tafla. Tilraun nr. 83-59. Sandur á mýrarjörð, upp- skera hkq/ha þurrefni. Engin 200 mVha 600 m3/ha 1200 m3/ha íblöndun sandur sandur sandur 1960 31,4 40,4 46,2 41,1 1961 45,6 65,0 74,4 78,7 1962 36,7 52,9 58,6 67,8 Meðaltal 37,9 52,8 59,7 62,5 Fervikagreining 5. tafla. Tilraun nr. 83-59. Sandur á mýrarjörð. Gróðurathugun með oddamælingu, 1962 , %. Engin 200 m’/ha 600 m3/ha 1200 m3/ha íblöndun sandur sandur sandur Vallarfox-+ 45 47 42 43 háliðagras Varpasveifgras 15 9 16 12 Önnur sveifgrös 4 8 5 3 Knjáliðagras 17 11 13 6 Túnvingull 2 4 6 18 Haugarfi 16 20 17 17 Túnsúra 1 1 1 Brennisóley 1 36 - FREYR 6/2000

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.