Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.2000, Blaðsíða 25

Freyr - 01.06.2000, Blaðsíða 25
markaðar við þau gen sem finnast innan tegundarinnar eða í öðrum náskyldum tegundum. Varla er við því að búast að þessar hefðbundnu aðferðir dugi til að koma af stað annarri „Grænni byltingu" sem næði því markmiði að tvöfalda uppskeru á hektara og byggja inn í erfðaefni nytjaplantna sjálfsvöm gegn margs konar áreiti sem minnkuðu þörf fyrir notkun eiturefna í landbúnaði. Það er þess vegna að augu vísindamanna beinast að því að finna nýja og gjörólíka kynbótatækni sem leyst gæti vandann. Hin nýja líftækni Hin nýja tækni, líftækni, og innan hennar, erfðabreytingar eða erfða- bætur, hefur verið að þróast á und- anfömum ámm. Sú tækni gerir það kleift að sækja gen út fyrir plöntu- tegundina, ættina og jafnvel plöntu- ríkið sjálft og gera genið hluta af erfðaefni plöntunnar. An þessarar nýju tækni eða einhverrar annarrar álíka öflugrar tækni, óttast ég að framleiðsla nægra matvæla fyrir niðja okkar eftir miðja þessa öld verði mjög ótrygg, ef mannkynið heldur áfram að fjölga sér jafnhratt og á síðustu öld. Ég óttast að þá yrði öflun fæðu erfiðasta, mikil- vægasta, og kannski eina vanda- málið sem mannkyn stæði frammi fyrir, því að sveltandi maður stend- ur ekki í öðmm stórræðum en þeim að finna sér matarbita. Mér finnst sjálfsagt og eðlilegt að höfð sé fúll aðgát þegar nýjum að- ferðum er beitt við framleiðslu, með- ferð og geymslu matvæla. Vandlegar vísindalegar rannsóknir verða að hggja til grundvallar áður en slíkum aðferðum er beitt og matvæhn boðin neytendum. Hins vegar finnst mér að þegar slíkt hggur fyrir og ekkert bendir til þess að heilsu manna stafi hætta af matvælum, sem framleidd em af erfðabreyttum plöntum, þá sé htil ástæða fyrir þeim ótta sem fram kemur í umfjöllun um þessi mál. Ég vil riQa upp að snemma á öldinni sem leið komu fram álíka öflug mótmæh við gerilsneyðingu mjólk- ur. Sams konar mótmæli, án nokkurra vísindalegra raka, sem virðast byggja á tilfmningum einum, koma enn í veg fyrir að nota væga geislameðferð við geymslu matvæla, en sú aðferð er ein sú árangursíkasta og meinlausasta sem völ er á. Þá væri Salmonella, Camphylobacter, E. coli og jafnvel Listeria nær því úr sögunni sem vandamál í matvæla- iðnaði. Það væri mikill skaði ef fá- kunnátta og tilfinningasemi fá meira vægi en marktækar vísindalegar rannsóknir í ákvörðunum um hvort leyfa eigi notkun erfðabreyttra plantna til framleiðslu matvæla. Eftirmáli I umræðum á ráðstefnunni bætti ég eftirfarandi við: I erindinu fjall- aði ég aðeins um hugsanlegan ávinning af erfðabættum nytja- plöntum til að mæta fæðuþörf heimsins á næstu áratugum. Avinningur okkar Islendinga af notkun erfðabættra plantna er nokkuð ótvíræður. Við búum hér í heimshluta sem hefur verið kallað- ur á mörkum hins byggilega heims. Flesta tegundir nytjajurta sem við ræktum eru nálægt ytri mörkum vaxtarskilyrða fyrir þær. Frostnætur seinni hluta ágúst eyðileggja oft kartöflugrös og vöxtur kartaflna stöðvast. Þetta veldur bæði uppskerutjóni og gæðarýmun. Það væri mikill feng- ur ef unnt væri að flytja gen í kartöfluplöntuna einhvers staðar frá sem yki frostþol hennar þó ekki væri nema um 1-2 gráður. Með venjulegum kynbótaaðferðum hefur tekist að framkalla afbrigði af byggi sem ná góðum þroska og viðunandi uppskeru af byggi í flestum ámm. Hins vegar getum við ekki ræktað hveiti hérlendis sem gefur nóga uppskeru. Það væri mjög áhugavert ef tækist að flytja gen í hveitiplöntuna sem gerði hana nógu snemmþroska og nægjusama á hita til þess að gefa af sér arðsama uppskem og við gæt- um bakað brauð úr íslensku gæða- hveiti. Ef þessi nýja tækni gæti gert íslenskum landbúnaði kleift að framleiða meira úrval af gæðamat- vælum á lægra verði, yrði það ís- lenskum bændum og íslenskum neytendum til mikilla hagsbóta. Þolinmæði ESB gagnvart kúariðu á þrotum Embættismannaráð ESB leggur til að frá 1. júlí nk. skuli öll svoköhuð áhættulíffæri varðandi kúariðu fjarlægð frá föllum nautgripa og fullorðins fjár við meðferð kjötsins. Þessir hlutar em heili, augu, mæna, hálskirtlar, milta og hluti af gömum. Með þessu er talið að áhættu á Creutzfeld-Jakobs veiki í mönnum verði haldið í algjöra lágmarki. Nú þegar hafa átta lönd, þar sem kúariða hefur verið staðfest, sett sér þessar reglur. Þau em Bretland, Portúgal, Frakkland, Belgía, Holland, írland, Luxem- burg og, frá því í mars sl., Dan- mörk. Það var hins vegar kúa- riðutilfellið í Danmörku sem varð til þess að ESB ákvað að setja sameiginlegar reglur fyrir öll lönd sambandsins. Samkvæmt væntanlegum regl- um skal brenna allt áhættuefni frá slátrun sem og sjálfdauð dýr eins árs og eldri. Lönd ESB, einnig þau þar sem kúariða hefur ekki komið upp, munu verða fyrir miklum kostnaði vegna þessa. (Intemationella Perspektiv nr. 17/2000). FREYR 6/2000 - 25

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.