Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.2000, Blaðsíða 31

Freyr - 01.06.2000, Blaðsíða 31
Garðrœkt í Svínafelli í Öræfum / Ihinni ágætu grein Jónatans Her- mannssonar „Gulrófur fyrr og nú“ í fyrsta hefti Freys 2000 er sagt að Sigurður Sigurðsson búnað- armálastjóri hafi getið þess eftir að hann fór um Öræfin árið 1905, að þar rækti menn sjálfir fræ af gulrófum og selji jafnvel öðrum af því. Hann mun ekki hafa fengið neinar sagnir um hvað lengi sú ræktun hafi þá verið samfelld í Svínafelli, en þar fór hún fram. Faðir minn, sem þar var fæddur árið 1879 og átti heima til aldamóta, sagði mér að Jón Pálsson, afi hans, sem heima átti í Svínafelli ffá 1845 til æviloka 1912, að einu ári undanskildu, hefði sagt sér að fræ af rófum muni fyrst hafa verið ræktað í Svínafelli um 1820. Sá sem byijaði fræræktina var Isleifur Asgrímsson sem bjó í Svínafelli frá 1805-1836, og lést 1845, veturinn áður en Jón kom alkominn að Svínafelli og var þá 18 ára. Ásgrímur hafði sett niður rófur til að fá af þeim fræ síðasta sumarið sem hann lifði, og Jón tók að sér að halda áfram fræræktinni ffam yfir aldamótin. Jón, sem var einn af stóra bamahópnum í Amar- drangi, hafði fyrst komið að Svínafelli 12 ára gamall og dvalið þar nokkum tíma, en virðist þó ekki hafa fermst þar. En á þeim tíma kynntist hann ísleifi, og tíndi oft fyrir hann jurtir sem Isleifur notaði í lækn- ingalyf, sem menn töldu koma að góðum notum. Vitað er að Hjörleifur læknir, sem Sigfús þjóðsagnasafnari segir frá, dvaldi um tíma hjá Isleifi, og má vera það þeir hafi numið hvor af öðmm. Jón sagði að Isleifur hefði talað um að rétt væri að segja hon- um við hvaða kvillum jurtirnar ættu, en ekki hefði orðið af því. En Jón kynntist fræræktinni hjá Ás- grími og hélt henni áfram þar til sonarsonur hans og alnafni tók við eftir Sigurð Björnsson, Kvískerjum henni. Það veit ég að er rétt að Jón lét oft rófufræ sem hann ræktaði, og því líklegt að rétt sé það sem ég heyrði sagt að hann hafi látið fræ að Kálfafelli, en ég efa að hann hafi selt það. Jón yngri Pálsson var um tíma hjá Einari Helgasyni í Gróðr- arstöðinni í Reykjavík, og kom með rófufræ þaðan heim að Svínafelli. Honum líkaði þær rófur betur en þær sem áður voru ræktaðar í Svínafelli og ræktaði því eingöngu fræ að þeim eftir það, en ekkert veit ég hvort það var bragðið, uppsker- an eða eitthvað annað sem hann taldi betra, en þetta varð til þess að ég get ekkert um það sagt hvemig gömlu Svínafellsrófumar litu út. Þess má geta að veðrátta í Svína- felli var mjög hagstæð til fræræktar. Isleifur var einnig upphafsmaður að kartöflurækt í Svínafelli. Fram yfir 1930 var til rennd tréskál í Svínafelli, sem nú er fyrir bí, allt að 40 sm í þvermál, sem föðursystir mín sagði að amma sín hefði sagt sér að Isleifur hefði komið með fyrstu kartöflumar í sem komu að Svínafelli. Til var a.m.k. ein önnur sams konar skál hér í sveit, og var mér sagt að hún hefði verið af franskri skútu. Hugsanlega hafa þær verið notaðar við söltun á skút- unum. Hér vom til tréskálar rennd- ar í rennismiðju, en þær vom með allt öðm lagi. Talið var að Isleifur haft fengið kartöflumar af strandi, sem mundi þá hafa verið 1828, en hann gæti líka hafa fengið þær úti á sjó, ef hann hefur farið í róður með Suðursveitungum, og haft með sér vettlinga til að láta fyrir kartöflum- ar, en ekki mun þá hafa verið neitt róið á sjó úr Öræfum. Þegar ég man fyrst eftir var dálítið um hvítar, lítið eitt aflangar kartöflur í Svína- felli, sem þá vom að víkja fyrir rauðum kartöflum eða rauðu lagi nokkuð innan við flusið, þannig að í þeim var rauður hringur ef þær vom skomar sundur. Sagt var mér að þær hefðu komið af franskri skútu sem strandaði í Suðursveit. Þær þóttu bragðbetri en hinar, og betri í upptöku því hinar þóttu of dreifðar. Þá skal að endingu minnt á annað í sambandi við rófur. Ég var einu sinni að blaða í Þjóðólfi frá 19. öld á Landsbókasafni, var að gæta að hvort þar væri nokkur frétt úr Öræf- um, en las lítið, rak þó augun í eina grein sem ég las alla, og held mig muna aðalefni úr. Mig minnir að blaðið hafi verið frá 1851, en það gæti hafa verið áratug eldra. Ekki þori ég heldur að ábyrgjast að und- irskriftin hafi verið Eyfellingur, en þaðan var greinin. Efnið var það að óvíst væri um rófnaræktina það árið, en að undanfömu hefði amt- maður sent fræ í hreppinn og menn sáð því í garða sína, en sl. sumar hefðu þeir sent pokann sem fræið kom í til Vestmannaeyja þegar búið var úr honum, og ætlast til að hann fengi góða ferð þaðan til amt- manns. En nú virtist pokinn týndur, og komið hefði orðsending frá amt- manni og hann gæti ekki sent fræ fyrr en hann fengi pokann. Sé þetta rétt munað, segir það dálítið um samgöngur og fleira, en þar sem nú em meira en þrír áratugir síðan ég las þetta, get ég ekki fullyrt að ég muni þetta alveg rétt. FREYR 6/2000-31

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.