Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.2000, Blaðsíða 22

Freyr - 01.06.2000, Blaðsíða 22
tekst að koma sér hjá því að mæta takmörkunum á leyfilegri losun vegna stóriðju á grundvelli þeirrar sérstöðu hve íslenska hagkerfið er smátt. Kolefnisbinding sem liður í að mæta skuldbindingum íslands Skoða þarf rækilega á hvern hátt ísland getur mætt skuldbind- ingum sínum gagnvart Kyotobók- unin árið 2010. Leiðirnar eru markvissar aðgerðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og binding þess kolefnis sem á vantar. Hve mikið þarf að binda? Aukningin í losun gróðurhúsa- lofttegunda, sem Islendingum var heimiluð í Kyoto, þ.e. 10% miðað við 1990, samsvarar um 290 þús- und tonnum CO^ á ári. Sam- kvæmt spá gæti losunin hins veg- ar orðið 40-50% meiri árið 2010 en 1990. Vísbendingar eru um að kolefn- isbinding með landgræðslu og skógrækt muni aukast mun meira að óbreyttri starfsemi en áætlanir stjórnvalda hafa gert ráð fyrir. Þetta er ekki aðeins vegna þess að bindistuðlar virðast vera hærri, heldur einnig vegna meiri afkasta í landgræðslu en reiknað var með, t.d. í uppgræðslustarfi bænda. Þetta verður kannað betur á yfirstandandi ári, en ljóst er að miðað við sömu afköst verður „inneignin á bindireikningum" nokkru meiri 2010 en ráð var fyrir gert. Að teknu tilliti til undanþágu- ákvæðisins, bættrar eldsneytisnýt- ingar og bindingar miðað við óbreytta framkvæmdagetu, gæti nýtt átak hugsanlega þurft að mið- ast við að hafa aukið árlega bind- ingu CO2 um 800 þúsund tonn árið 2010. Mikil óvissa í stóriðjumálum veldur því hins vegar að þessi tala er ekki byggð á traustum grunni. Mikilvægt er að taka saman áætl- aða bindiþörf miðað við mismun- andi forsendur. Bændur og kolefnisbinding Landbúnaðurinn gæti orðið einn helsti „verktakinn“ í bindingu kol- efnis hér á landi sem annars staðar. Bændur eru ræktunarmenn, þeir eru í nálægð við þau uppgræðslu- og skógræktarsvæði sem best henta og þeir búa yfir þeirri þekkingu og þeim tækja- kosti sem til þarf. Bændur geta því bundið kolefni á hagkvæmari hátt en flestir aðrir. Samhliða því að þjóðin hafi beinan hag af slíku þjónustuhlutverki landbúnaðarins eru gríðarlegir hagsmunir í húfi fyrir bændur. Svo dæmi sé tekið mætti hugsa sér að bændur gerðust verktakar í samstarfi við Land- græðsluna um að hafa aukið ár- lega bindingu koltvísýrings um kr. 200 þúsund tonn árið 2010 (sem er lokaár næsta viðmiðunartímabils Kyoto-bókunarinnar) með upp- græðslu og öðrum landbótum í heimalöndum. Gróft reiknað myndi slíkt verkefni alls kosta um kr. 200 milljónir á ári og verið væri að græða um 4000 ha af mel- um, moldum, rofabörðum og öðru illa förnu landi á ári. Hvað af- kastagetu bænda varðar, þá væri grundvöllur fyrir enn stærri bindi- markmiðum, t.d. að hafa aukið með uppgræðslu árlega CO2 bind- ingu um 300 - 500 þúsund tonn ár- ið 2010. Hagsmunirnir eru margvíslegir. Á mörgum jörðum eru landbætur, stórar eða smáar, ein af forsendum þess að búfjárframleiðsla geti talist sjálfbær. Reynslan, m.a. úr verkefninu Bændur græða landið, sýnir að hægur vandi er að græða mela og önnur rofsár samhliða nýtingu ef beitarálag er hóflegt. Einhver aukakostnaður leggst þó á uppgræðsluna vegna beitarinnar, en mjög breytilegur eftir aðstæð- um. Meiri landkostum fylgir aukið hagræði í búskapnum, möguleikar til að skipuleggja beit betur og auknar afurðir. Bændur í búíjárrækt hefðu því beinan arð af uppgræðsl- unni. Samhliða er verið að bæta ásýnd sveita, auka velvilja þjóðar- innar gagnvart landbúnaðinum og búa í haginn fýrir komandi kyn- slóðir, sem ekki veitir af því æ erfiðara verður fyrir ört vaxandi mannfjölda í heiminum að afla sér fæðu í framtíðinni. Miklir möguleikar liggja einnig í kolefnisbindingu með skóg- og skjólbeltarækt, sem hefði jafnframt í för með sér beinan arð og verð- mætaaukningu á landi. Kostnaður- inn er hins vegar heldur meiri en við almennar landbætur, en hag- kvæmast virðist að breyta auðn í skóg. Möguleikar til atvinnutekna eru meiri í skógrækt því að hún krefst meira vinnuafls miðað við hverja einingu í efniskostnaði. Kolefnisbinding með land- græðslu og skógrækt er stórt byggðamál. Útfærsla slíkra verk.- efna getur verið með ýmsum hætti og tekjur bænda geta bæði verið í formi aukins arðs af landinu og/eða beinna launagreiðslna vegna fram- kvæmda. Landsbyggðarmál Kolefnisbinding með upp- græðslu og skógrækt á ófrjóu landi eykur landkosti. Slíkar að- gerðir hafa því mikið þjóðhagslegt gildi, út frá mörgum sjónarmiðum, og treysta framtíð þjóða. Hvað okkur Islendinga varðar hefur skógur, annar gróður og jarðvegur eyðst af miklu landi í aldanna rás. Öllum aðgerðum til að bæta slíkt land fylgir sjálfkrafa mikil kolefn- isbinding. íslenskur landbúnaður gæti skapað sér stórt hlutverk sem þjónustuaðili við þau verkefni sem hér bíða á sviði kolefnisbind- ingar og bætt um leið landkosti fyrir bæði núverandi og komandi kynslóðir. Slík verkefni gætu um leið orðið liður í að efla landbún- aðinn og styrkja hinar dreifðu byggðir landsins. 22 - FREYR 6/2000

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.