Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.2000, Blaðsíða 38

Freyr - 01.06.2000, Blaðsíða 38
Búvélaprófanir ) Rannsóknastofnun landbúnaðarins, bútæknideild, Hvanneyri Ár 1999 Nr. 704 AVANTE - fjósvél Gerð: AVANT Profi Framleiðandi: AVANT TECNO OY, Finnlandi. Innflytjandi: Orkutækni hf., Reykjavík YFIRLIT AVANT fjósvélin var reynd af Bútæknideild Rannsókna- stofnunar landbúnaðarins veturinn 1998-99. Vélin var notuð í rúma tvo mánuði við gjafir á ferböggum, rúllu- böggum og lausu þurrheyi í fjósi með um 50 kúm. Fjósvélin er ætluð til fóðurflutninga við gjafir í fjósum og öðrum gripahúsum eftir því sem aðstæður gefa til- efni til. Vélinni fylgja jafnframt skófla og lyftaragafflar. Vélin er knúin með 13 hestafla bensínhreyfli með raf- starti og hún vegur um um 480 kg. Drifhjól eru knúin með vökvamótorum og lyftibúnaði er stjórnað með vökvatjökkum. Gerður var samanburður á afköstum við gjafir í fjósi, annars vegar með vélinni og hins vegar með hjólakvísl. Niðurstöður má sjá í meðfylgjandi mynd. Samanburðurá afköstum við gjafir Hægt er að athafna sig við tiltölulega þröngar aðstæður, og er í raun bara breidd vélarinnar sem er takmarkandi, ásamt lengd þar sem um beygjur er að ræða. Vegna þess að tækið er ekki mjög þungt er ekki hægt að lyfta venjulegri rúllu, en hægt er að draga rúllu til nokkuð auðveldlega. Þegar unnið er við heygjafir þarf að gæta sérstakrar varúðar vegna slysahættu bæði m.t.t. manna og gripa. Fjósvélin ertraustlega smíðuð og ertil mikils vinnuléttis Ár 1999 Nr. 705 VERMEER - rúllubindivél Gerð: Vermeer 504 Series L. Framleiðandi: Vermeer Manufacturing Company lowa USA. Innflytjandi: Búvélar hf. Reykjavík og Selfossi. YFIRLIT Vermeer 504 L er rúllubindivél með breytilega bagga- stærð þ.e.a.s. fastkjarnavél. Hún var reynd af Bútækni- deild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1999. Við prófun vélarinnar voru bundnir 1.213 baggar. Bindivélin er dragtengd, knúin frá vinnudrifi dráttar- vélar og vökvakerfi. Hún vegur 1940 kg. Hún tekur hey á öllum þurrkstigum upp úr görðum eða sláttumúgum og forþurrkað grænfóður og vefur í þétta, sívalnings- laga bagga. Þeir eru 1,2 m breiðir og allt að 1,6 m í þvermál, þannig að rúmmál þeirra getur orðið um 2,1 m3. Þyngd bagga er eðlilega breytileg eftir stærð en einnig eftir þurrkstigi og þjöppun vélarinnar. Gerðar voru ítarlegar mælingar á rúmþyngd (kg þe/m3) heysins með ólíku þurrefnisinnihaldi og kom ekki fram raunhæft samhengi þar á milli. Þyngdin oft á bilinu 150-180 kg þe/m3. Með algenga baggastærð og þurrkstig um 60- 70% mældist rúmþyngdin mest um 190. Afköst mæld- ust mest nettó um 1,2 mín/bagga en að jafnaði um 1,35 mín nettó. Til að áætla raunveruleg afköst má bæta a.m.k. 15% við þennan tíma vegna aksturs milli múga og smávægilegra tafa. Því er hér reiknað með um 35- 40 böggum á klst. Þegar afkastamælingar voru gerðar var þurrefni heysins á bilinu 30-60%. Ef miðað er við að afköst séu 35 baggar/klst og uppskera 4000 kg þe./ha má í grófum dráttum áætla afkóstin um 1,5 ha á klst. Vélin er lipur í notkun og vinnur vel við allar algengar aðstæður. Mæld var aflþörf við gerð nokkurra bagga af fyrri slætti.. Aflþörfin á drifskafti vex jafnt og þétt í upp- hafi bindingar upp í um 25 kW en helst síðan á bilinu 25-30 kW þar til binding hefst. Að teknu tilliti til dráttar- afls verður því að ætla að það þurfi 45-50 kW dráttarvél (60-70 hö) til þess að fullnýta þjöppunar- og afkasta- getu vélarinnar. Gúmmíbeltin virðast mun vandari en á fyrri gerðum sem hafa verið til prófunar og var ekki unnt að merkja neitt lát á þeim í lok reynslutímans. Fylgjast 38 - FREYR 6/2000

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.