Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.2000, Blaðsíða 16

Freyr - 01.06.2000, Blaðsíða 16
r ar hafi aðgang að skjóli og þar geta skjólbelti úr trjágróðri verið heppileg og falleg lausn. Þar sem hrossum er gefið út að vetri er skynsamlegt að skipuleggja skjól- belti til þess að auka vellíðan þeirra og bæta nýtingu fóðurs sem annars fýkur burt. Mikilvægt er að skipuleggja skjólbeltin þannig að þau veiti skjól gegn öllum áttum. Snjósöfnun Sömu þættir stjóma skjóláhrifum og snjósöfnun skjólbelta, s.s. hæð, holprósenta og lega miðað við vindátt. Snjósöfnunin byggir á því að viðnámið, sem skjólið veitir vindinum, dregur verulega úr vind- hraðanum sem leiðir til þess að einnig dregur úr eiginleikum vinds- ins til þess að flytja snjókorn (http://www. agr. ca/pfra/shbgene. htm.). Snjódreifingin kringum skjól- beltið sýnir okkur hver skjóláhrif skjólbeltisins eru, þ.e. þar sem skjólið er mest safnast mestur snjór því að þar dregur mest úr hæfileik- um vindsins til að flytja snjóinn (Ólafur Njálsson, 1984). Snjórinn safnast einkum hlémeg- in við skjólbelti og geta skaflar ver- ið til vandræða á ökrum og túnum að vori einkum á snjóþungum svæðum og tafið jarðvinnslu. Á snjóléttari og umhleypingasamari svæðum getur snjórinn skýlt gróðri og komið í veg fyrir svellakal eða dregið úr myndun jarðklaka. Á þurrari svæðum getur hinn aukni jarðraki, sem fylgir snjónum, skap- 16- FREYR 6/2000 að nytjagróðri betri skilyrði en á bersvæði. Skjólbelti eru heppileg leið til að halda snjó frá vegum og umferðar- leiðum. Slík skjólbelti ætti að stað- setja eins nálægt vegum og unnt er og hafa þau tiltölulega þétt. Ekki skyldi þó staðsetja belti nær en 15- 20 m frá vegi. Sé beltið þétt safnar það miklum snjó næst sér (http://www.agr. ca/pfra/shbgene. htm.). Snjósöfnun við híbýli, útihús og önnur mannvirki getur verið vanda- mál á vindasamari svæðum. Skyn- samlega hönnuð skjólbelti geta fangað snjó og haldið honum frá húsum. Jarðvegsfok Þegar land er brotið til ræktunar eða gróðri eytt af öðrum ástæðum myndast hætta á jarðvegsfoki. Hversu þétt skjólið þarf að vera til að koma í veg fyrir hreyfingar jarð- vegs veltur á vindstyrk og eðliseig- inleikum jarðvegsins. Ef vind- styrkur fer yfir átta vindstig nægir 50% skjól ekki við venjulegar að- stæður en það er sú holprósenta sem mælt er með við plöntun skjól- belta (Ólafur Njálsson, 1984). ís- lenskum jarðvegi er einkar hætt við jarðvegsfoki vegna þess hversu eðl- isléttur hann (Ólafur Arnalds 1995). Á svæðum þar sem er viðvarandi ræktun án varanlegrar gróðurtorfu, s.s. komakrar og kartöflugarðar, ættu skjólbelti að vera skilyrðislaus hluti ræktunarinnar. Einkum á þetta við í léttum jarðvegi eða sand- jarðvegi sem hættir til að þoma. Við fok jarðvegs tapast fínni jarð- vegsagnir úr yfirborðslögum en slíkt leiðir af sér minni vatnsheldni yfirborðslaganna sem leitt getur til aukins jarðvegsrofs (Souto og Meneses, 1998 eftir Baldwin og Johnston, 1984). Jarðvegseyðing af völdum vatns er einnig viðvarandi vandamál í ak- uryrkju. Skjólbelti draga úr yfir- borðsrennsli vatns og minnka þann- ig hætm á flóðum og tryggja stöð- ugri vatnsbúskap (Souto og Meneses, 1998 eftir Soltner, 1991). Notkun skjólbelta til að hefta uppblástur og gróðureyðingu er einnig vænlegur kostur. Þennan möguleika ber að hafa í huga í sí- vaxandi umræðu um vemdun og endurheimt landgæða. Hávaðamengun Rannsóknir staðfesta að skjól- belti geta dregið vemlega úr há- vaðamengun (Ólafur Njálsson, 1984 eftir Cook og van Haverbeke, 1971). Minnkun hávaðans verður vegna þess að tijágróðurinn gleypir hljóðbylgjumar eða dreifir þeim. Mest minnkun hávaða fæst með því að staðsetja skjólbeltið næst upp- tökum hávaðans t.d. vegi. Reikna má með að um þrjátíu metra skjól- belti þurfí til að draga úr hávaða um 10 decibel (Ólafur Njálsson, 1984 eftir Cook og van Haverbeke, 1971) Á síðari árum hefur umferð um þjóðvegi landsins þyngst til muna. Víða liggja vegirnir gegn- i i

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.