Freyr - 01.06.2000, Síða 6
Hér má sjá myndarhanann Steinar og Glettu hans.
kom 1989 og Lýsingur frá
Hvalnesi, Skagafirði kom 1996.
Hann er út af Andvara 922
Við vorum mjög sæl með þá, það
var eins og ræst hefði gamall
draumur. I grennd við okkur eru
miklar reiðgötur, í Kalifomíu em
oft skógareldar og slökkviliðið hef-
ur látið ryðja rásir út um allt, skóga
og hæðir, sem gott er að nota til út-
reiða. Flestir í kringum okkur em
með hesta og önnur dýr hjá sér.
Út frá þessu spannst það að eitt
sinn þegar ég kom heim til Islands
þá fór ég á skrifstofu trmaritsins
Eiðfaxa og hitti þar ritstjórann, As-
dísi Haraldsdóttur, sem sagði mér
að áhugi væri nú mjög vaxandi á ís-
lenskum hundum og hænsnum.
Hænsnum, sagði ég, og gat ekki
gleymt þessu. Þegar ég svo kom
næst til íslands þá hafði ég sam-
band við Magnús Óskarsson sem
ég þekkti frá fomu fari í Kópavogi
og vissi að var á Hvanneyri, en As-
dís hafði sagt mér að þessi hænsni
væm þar. Magnús kom mér þá í
samband við Emmu Eyþórsdóttur á
RALA og hjá henni starfaði Hall-
grímur Sveinsson, ungur maður, af-
ar áhugasamur, og hann var aðal-
hjálparhella mín við að koma
hænsnunum út til Kalifomíu.
Ég þurfti svo að fá alls konar
vottorð frá Tilraunastöðinni á Keld-
um til að uppfylla kröfur Landbún-
aðarráðuneytis Bandaríkjanna í
Washington og ég verð að segja að
þeir sem að þessu komu hér á landi
vildu allt fyrir mig gera.
Ég fékk svo leyfi til að flytja út
30 egg en það urðu töluverð afföll
af þeim þannig að í seinna skiptið
sat ég sjálf undir eggjunum í flug-
vélinni, þá vom eggin 40. Eggin
mega ekki vera eldri en 6 daga og
hitastig að haldast um 13°C í
ferðinni.
Heima í Kalifomíu beið tilbúin
öll aðstaða til útungunar og í fyrra
sinnið fékk ég sjö unga og í seinna
skiptið átta.
Veistu hvaðan af íslandi þessi
hœnsni voru?
I fyrra skiptið, árið 1997, vom
eggin frá Syðstu-Fossum í Andakíl
en í síðara skiptið frá Steinum í
Stafholtstungum.
Ég hef svo fjölgað hænsnunum
og núna á ég 30 hænur og átta
hana. Enn sem komið er legg ég
áherslu á að koma upp góðum ís-
lenskum stofni en ég gaf íslenskum
manni, sem býr ekki langt frá mér,
nokkur hænsni. Hann heitir Valur
Blomsterberg og er frá Hafnarfirði.
Hann flytur inn hesta frá Islandi.
Auk þess gaf ég vinkonu minni
nokkur.
Hvernig haga hœnsnin sér
þarna?
Ég hafði áhyggur af því að þau
þyldu ekki hitann, því að það getur
orðið töluvert heitt hjá okkur, en
þau þola hitann vel. Þegar hitinn er
kominn yfir 30°C sé ég samt að þau
spenna svolítið út vængina. Þá
kem ég með vatnsslöngu og úða hjá
þeim og það kælir töluvert. En níu
mánuði á ári er hitinn hjá okkur
þægilegur.
Hvernig er varpið?
Ég er nú með 30 hænur og fæ 5,3
egg á hænu á viku eða rúmlega 150
egg. Við torgum þessu að sjálf-
sögðu ekki en bömin mín og ná-
grannamir fá þau egg sem við not-
um ekki sjálf. Eggin em hvít á lit
og svolítið minni en egg í búðum.
Ég hef heyrt að ráða megi af eyma-
sneplum hænanna hvaða litur er á
eggjum þeirra. Ef þeir em hvítir
eða gulir þá em eggin hvít en ef
þeir em rauðir þá em eggin brún.
Ég hafði heyrt að íslenskar hænur
verptu ekki vel, en þær verpa mjög
vel hjá mér, finnst mér.
Og þú ungar út áfram?
Já og íslensku hænumar em með
afbrigðum viljugar að liggja á,
næstum um of og afar góðar unga-
mæður. Mér finnst miklu betra að
þær ungi út sjálfar og hafi ungana
hjá sér. Það er minni fyrirhöfn við
það, en ég hef ungað út töluvert í
vél.
Afhverju ertu með þessi hœnsni?
Ég held að það sé vegna þess að
ég hændist svo að dýmnum þegar
ég var í sveit í Bjarnarhöfn, í 10
sumur. Svo í Kópavoginum var
móðir mín með hænsni og hún hló
oft að því að þegar hún vissi ekki
hvar ég var og sá mig ekki þá var
ég uppi í hænsnakofa. Þetta er
þannig einhver bernskuþrá hjá
mér. Svo em þetta íslensk hænsni
og það tengir mig við Island. Þetta
er þúsund ára gamall stofn á
Islandi.
6 - FREYR 6/2000