Freyr - 01.06.2000, Side 35
með mykjunni virðist takast vel í
kalblettum þar sem fræplönturn-
ar búa ekki við samkeppni, en of
langt er á milli raða.“
Hér verður getið um tvær til-
raunir, sem gerðar voru á
Hvanneyri með endurvinnslu
túna. Tilraun nr. 765-65
skemmdist á öðru ári og þess
vegna var hætt við hana. Til-
raunin var á sléttu fyrir vestan
Grásteinsmýri (tafla 7).
Einum tilraunalið er sleppt úr
þessu uppgjöri. Sá liður var
plægður haustið 1964 og
herfaður og síðan sáð í hann
vorið 1965. Þessi tilraunaliður
eyðilagðist gjörsamlega, að hluta
til vegna óhappa.
Aður en tilraun nr. 165-65
hófst var mjög mikið
varpasveifgras í túninu, þess
vegna var tilraunin gerð þar.
Arið 1965 var mikill haugarfi í
liðnum, sem tættur hafði verið,
og næsta ár bar töluvert á vall-
arfoxgrasi og dálítið á haugarfa.
Árið 1966 var skrifað í tilrauna-
2. tafla. Rúmþyngd
jarðvegs í 165-65 tilraun nr.
Rúmþyngd
Túnið óhreyft 0,31
Túnið tætt 0,31
Sáð og herfað 0,29
dagbók að ekki væri unnt að sjá
mismun á reitunum þar sem
túnið var óhreyft og þar sem sáð
hefði verið og herfað með
óskekktu diskaherfi.
I ágúst 1966 voru tekin jarð-
vegssýni úr tilrauninni úr 0-5 cm
dýpt og mæld í þeim rúmþyngd.
Mismunur milli liða reyndist
ekki raunhæfur en niðurstöður
voru eins og hér segir: (tafla 2).
Vegna þess að tilraun nr. 165-
65 mistókst að verulegu leyti var
ákveðið að gera aðra svipaða.
Það ýtti en frekar undir það að
Bútæknideild RALA á
Hvanneyri hafði þá undir
höndum túnsáðvél.
Tilraunin nr. 214-67 var á
mýrarjörð austan við Grænhól á
Hvanneyrartúninu. Mýrin var
ræst fram árið 1953 og unnin
með jarðvegstætara 1959. Notuð
var MR-blanda 1959, sem var
með 17,2% háliðagras, 42,8%
vallarfoxgras, 17,2% túnvingul,
8,5% hávingull, 8,5% há-
sveifgras og 5,8 vallarsveifgras.
Markmiðið með tilrauninni var
að finna ódýra aðferð til að end-
urnýja gróðurinn í gamal túninu
og auka uppskeruna.
Tilraunakerfið var þannig:
a. Túnið ómeðhöndlað.
b. Sáð í túnið með túnsáðvél án
jarðvinnslu.
c. Túnið tætt með tætara einu
sinni og sáð í það með
túnsáðvél.
d. Grasrótin tætt með
hjólmúgavél og sáð i landið
með túnsáðvél.
e. Túnið plægt og herfað og sáð í
það með túnsáðvél.
í alla liði nema a-lið var sáð
sem svaraði 20 kg/ha af
grasfræblöndu A frá SÍS og 20
kg/ha af einæru rýgresi. Á
spildunni, sem tilraunin var á
höfðu áður verið tilraunir. Árið
1967 þegar tilraunin hófst voru
orðin mikil umskipti í gróðurfari.
Það vor var gróðurfarsmælt með
oddamælingu. Niðurstöðuna má
sjá á mynd 1.
Rétt er að vekja athygli á að til-
3. tafla. Tilraun nr. 214-67 með endursáningu túna.
Uppskera hkg/ha þurrefni.
Túnið unnið Túnið tætt
Túnið Sáð m/ tætara m/múgavél Túnið plægt
Ár óhreyft m/sáðvel og sáð og sáð herfað og sáð
1967 50,6 44,7 27,0 35,3 36,0
1968 47,4 44,8 42,5 40,3 37,5
1669 35,1 35,4 34,9 31,6 26,2
1970 51,9 56,2 52,1 51,8 48,0
Meðaltal: 46,3 45,3 39,1 39,8 36,9
FREYR 6/2000 - 35
.1