Freyr - 01.06.2000, Blaðsíða 39
C Búvélaprófanir )
Ár 1999 Nr. 706
DGI - niðurfellingartæki f/búfjáráburð
Gerð: Moi DGI-6. Framleiðandi: ReBio AS Vika,
Noregi. Innflytjandi: Ingvar Helgason hf Reykjavík.
YFIRLIT
Moi DGI-6 niðurfellingartæki fyrir búfjárburð kom til
prófunar í júnímánuði 1998 og var reynt af Bútækni-
deild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins fram á
haustdaga 1999. Það var notað við útakstur á búfjár-
áburði alls um 740 tonn við breytilegar aðstæður. Tæk-
ið er einkum ætlað til niðurfellingar en einnig til flutnings
og dreifingar á fremur þunnum búfjáráburði. Helstu
hlutar þess eru 8000 lítra stáltankur sem hvílir á grind
og 2 gúmmíhjólum og mykjudæla sem fest er á dráttar-
beislið. Tækið vegur 2180 kg og er tengt ýmist í drátt-
arkrók eða sveiflubeisli dráttarvélar. Niðurfellingarbún-
aðurinn erfestur á burðargrind tanksins með hraðtengi-
búnaði og þannig að fljótlegt er að aftengja hann og
setja hefðbundinn búnað til yfirbreiðslu á tankinn. Hrað-
tenging er einnig á börkum og vökvabúnaði. Búnaður-
inn er með vökvatjökkum til að lyfta upp niðurfellingar-
búnaðinum. Dælan er miðflóttaflsdæla með föstum aft-
urbeygðum spöðum knúin frá aflúttaki dráttarvélar. Tvö
hraðastig eru á dælunni miðað við fastan hraða á aflúr-
taki. Dælan afkastar 2,0-2,4 m3/mín og er þrýstingurinn
frá dælunni 5-10 bör. Vökvaúttök á dráttarvél með
þrýstingi þurfa helst að vera þrjú, tvö bakrennslistengi
og eitt sett með flotstillingu. Við niðurfellingu áburðarins
þarf að gæta þess að sleðarnir hvíli af fullum þunga á
jarðveginum þ.e. að vökvakerfið beri ekki hluta af
þunga sleðanna uppi. Mykjudælan er látin vinna upp
þann þrýsting sem óskað er eftir en getur hann getur
þó takmarkast verulega af afli dráttarvélar. Gerðar voru
athuganir á niðurfellingardýpt á fremur þéttu mýrartúni.
Snið sem tekin voru í jarðveginn sýndu að mykjan fór
niður á um 3-4 cm dýpt miðað við að þrýstingur frá
dælu væri um 5 bör en notuð var 75 kW (100 hö) drátt-
arvél. Magn áburðar var um 45m3/ha. Til að ná há-
marksþrýstingi getur þurft að nota allt að 90 kW (120
hö) dráttarvél. Við niðurfellinguna kom fram að ef
Avant framhald
miðað við hefðbundnar aðferðir við gjafir. Það getur þó
verið háð aðstæðum á hverjum stað.
Nokkra leikni þarf við stjórnun vélarinnar og ætla má
að það taki um vikutíma að ná viðunandi leikni þannig
að afkastageta tækisins nýtist sem skyldi.
Vélin var notuð í um 40 klst og komu engar meiri
háttar bilanir fram á þeim tíma.
Aðrar skýrslur varðandi gjafatækni eru m.a. nr. 530,
531,554, 562, 566, 596, 606, 613, 614, 669, og 682.
Vermeer framhald
þarf vel með afskröpurum á drifvölsum og stilla þá af
og til. Vélin er með vökvalyftu á sópvindu og landhjól
má fá sem aukabúnað. Engar bilanir komu fram og vél-
in virðist traustbyggð og vönduð.
Aðrar búvélaprófanir um rúllubindivélar eru m. a. nr.
538, 539, 540, 587, 601,604, 609, 616, 618, 619, 627,
642, 650, 663, 667, 674 og 702.
DGI framhald
yfirborðið er vel slétt fer mest allur áburðurinn undir
yfirborðið. Afkastamælingar sýndu að nær helmingur
tímans fer í akstur en niðurfellingin tekur aðeins um 0,5
mín á tonn. Nettó afköstin við sjálfa niðurfellinguna
reyndust sem svara til um 7,2 tonn af þurrefni á klst
miðað við 6% þurrefnisinnihald. Tækið er á belgmiklum
dekkjum m.t.t. þunga á flatareiningu og á blautum
spildum og var ekki hægt að sjá að það sporaði umfram
dráttarvélarnar. Yfirleitt gekk viðstöðulaust að fella
mykjuna niður þar sem hnífarnir sem hreinsa frá
götunum á niðurfellingarmeiðunum gátu að jafnaði
hreinsað frá þó að t.d. heyrusl væri í áburðinum. Öðru
hvoru þarf þó að opna rennslisbúnaðinn og hreinsa
hann af föstum aðskotahlutum. Engar teljandi bilanir
komu fram á reynslutímanum.
Aðrar skýrslur um mykjudreifara nr: 547, 551, 570,
584 og 634.
Skýrslur um búvélaprófanir fást hjá:
Rannsóknastofnun landbúnaðarins,
Bútæknideild Hvanneyri,
311 Borgarnes.
Ábyrgðamaður: Grétar Einarsson.
Sími: 437 0123. Myndsími: 437 0130.
Heimasíða: www.rala.is/but
netfang: but@rala.is
FREYR 6/2000 - 39