Freyr

Årgang

Freyr - 01.02.2003, Side 21

Freyr - 01.02.2003, Side 21
Asýnd og skipulag bújarða Inngangur I könnunum hefur komið fram að meðalaldur búrekstrarbygg- inga hér hefur hækkað verulega á undanfömum árum og af þeirri ástæðu einni er aukin þörf fyrir endumýjun. Önnur tilefni em af ýmsum toga og nefna má að mjólkurframleiðslan er að færast á færri hendur og þau bú því að stækka með tilheyrandi nýbygg- ingum og breytingum. Sömu sögu er að segja í alifugla- og svína- rækt. Þó að ekki sé aukning í sauðfjárræktinni eru margir bændur að endurbæta húsin og nokkur ný em að rísa. Mikil aukning er í öðmm greinum, eins og ferðaþjónustu og skógrækt. Þessi staða, ásamt eðlilegum við- gangi í búskapnum, leiðir til að mjög margir bændur standa í byggingaframkvæmdum, bæði nýbyggingum, endurbótum og breytingum. I verkefninu „Feg- urri sveitir“, sem landbúnaðarráð- herra, Guðni Agústsson, hrinti i ffamkvæmd árið 2000 bar þessi mál á góma. Einnig er tilefnið að þeir opinberir aðilar, sem koma að byggingamálefnum dreifbýlis- ins, verða oft varir við að ásýnd býlanna, afstaða og innra skipu- lag er ekki nægilegur gaumur gef- inn. Algengara er en áður að þeir sem hanna og skipuleggja húsin hafa ekki búfræðilegan bakgmnn og koma jafnvel aldrei á bygg- ingastað. Bygginganefndirnar hafa takmarkað umboð til af- skipta af þessum málum svo fremi sem mannvirkin uppfylla lög og reglugerðir enda ekki með þau gögn í höndunum eða fag- þekkingu sem þarf til aðgerða. ÁSÝND BÚJARDA Af bæ þeim helst sá örmull eini: A eyðivelli rœktarlausum stóð sauðahús. Úr hellusteini var hleðslan gerð og moldar- hnausum, og hliðarveggjum var hlaðið saman, og hellublöðum mœnir reftur, en glugginn skjár á gafli framan I glufu undir þekju krepptur. Þannig hefst ágæt grein sem Þórir Baldvinsson skrifar 1968 um byggingar í sveitum. Kvæðið er eftir Stephan G. Stephansson og lýsir snilldarlega í fáum orðum húsaefni Islendinga í þúsund ár. I grein sinni segir Þórir ennfremur orðrétt: „Nýju byggingamar í sveitum og bæjum hafa lengi verið að íjar- lægjast allt, sem kallazt getur stíll eða hefðbundið svipmót. I stað þess eru komin eins konar tízku- fyrirbæri, sem sjaldan endast lengur en áratug í senn. Fyrir eftir Grétar Einarsson, Bútæknideild RALA, Hvanneyri og Ólaf Guðmundsson, bygginga- fulltrúa nokkrum árum vom flest öll hús með valmaþökum til sjávar og sveita, og síðasta áratug hafa skúrþök verið allsráðandi. Nú síð- ast em lág risþök aftur í uppsigl- ingu, að því er virðist. Fólkið vill fá það sem mest er í tízku, og arki- tektamir em líka böm síns tíma. Þó fara þessi tízkufyrirbæri betur í Haukholt í Hrunamannahreppi. Byggingar falla vel að umhverfi og gott samræmi er á milli nýrri og eldri bygginga. Aðskilin umferð að íbúðarhúsi og útihúsum. (Ljósm. Gunnar M. Jónasson). Freyr 1/2003 - 17 |

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.