Freyr

Volume

Freyr - 01.09.2002, Page 34

Freyr - 01.09.2002, Page 34
—»—Sauðir-myrkur Sauðir- Ijós —Gimbrar- myrkur -«-Gimbrar-Ijós 1. mynd. Áhrif lýsingar á þrif lamba og fóðurnotkun í innifóórun. niðurstöður varðandi mun milli fóðrunarhópanna eru í 1. töflu, en munurinn reyndist ekki töl- fræðilega raunhæfur í neinu til- viki enda fóðrunarhópamir fre- mur smáir. Þó má segja að í þessari tilraun hafi vaxandi hlut- fall fiskimjöls á móti byggi ekki skilað neinu sem réttlætti kostn- aðaraukann. Fiskimjöl er nú um stundir allt að því þrefalt dýrara en bygg og stórir skammtar af því til fóðrunar sláturlamba tæp- ast réttlætanlegir þó svo að visst lágmarksmagn geti verið nauð- synlegt til að tryggja nægt pró- tein í fóðrinu. Víða gengur erfiðlega að ná viðunandi vexti í lömb í skammdeginu (nóv-des), en lömbin taka undantekningalítið vel við sér þegar daginn tekur að lengja. Þessi vaxtartregða tengist sennilega bæði fengití- manum og stuttum degi. Veturinn 1999-2000 var gerð athugun á tilraunastöðinni á Hesti með að hafa ljós allan sólarhringinn hjá lömbum í inni- eldi um vetur og til samanburð- ar var hópur sem bjó við eðli- lega daglengd. Verulegur mun- ur var á vexti hópanna og skil- uðu lömbin, sem höfðu ljós all- an sólarhringinn, að meðaltali 1,3 kg meira kjöti en hin (Stefán Sch. Thorsteinsson og Sigvaldi Jónsson, 2000). Niður- stöðurnar þóttu benda til þess að bæta megi þrif lamba í inni- fóðrun töluvert með lýsingu og ástæða væri til að meta hversu mikill þessi ávinningur geti ver- ið með skipulegri tilraun. Sú tilraun var gerð síðastliðinn vetur og eru niðurstöður hennar efniviður í aðalverkefni Sigríðar Jóhannesdóttur frá Gunnarsstöð- um í Þistilfírði við Landbúnaða- rháskólann á Hvanneyri. Borinn var saman vöxtur lamba (sauðir og gimbrar) við náttúrulega daglengd annars vegar og lýsin- gu í 16 tima á sólarhring hins vegar. Meðfylgjandi línurit 1. mynd sýnir áhrif lýsingarinnar greinilega. Lífþungamunur við lok tilraunarinnar (18. febrúar) var 5-6 kg ljósahópnum í vil, bæði hjá sauðum og gimbrum, og fallþungamunur um 1,3 kg ljósahópunum i vil. Bæði í þessari tilraun og athuguninni, sem gerð var veturinn 2000, reyndist lýsingin hafa nokkru meiri jákvæð áhrif á hrúta/sauði en gimbrar, og áhrifín korna fyrst fram eftir jól (sjá 1. mynd), þ.e. eftir að dag tekur að lengja aftur. I athuguninni veturinn 2000 var eingöngu fóðrað á góðu heyi, en í tilrauninni síðastliðinn vetur var helming lambanna í hvorum hóp gefíð fískimjöl með heyinu en hinum helmingnum kjarn- fóðurblanda. Fyrstu athuganir benda ekki til verulegs munar á vexti eftir því hvernig fóðurbæti lömbin fengu. Lokaorð Hér hefúr verið sagt lauslega ffá nokkrum niðurstöðum úr rann- sóknum varðandi innieldi slát- urlamba, og er margs ógetið um þessi efni. Eldi sláturlamba langt lfam eftir vetri, svo sem ffam að páskum, er dýrt en getur helst ski- lað einhveiju í aðra hönd sé um að ræða lömb sem eru of smá til slátrunar að hausti en hafa þó óskerta vaxtargetu. Fremur lítil svör hafa fengist um það hvort eða hvemig megi örva vöxt eða hafa áhrif á hlutföll vöðva og fítu með mismunandi kjamfóðurgjöf. Hins vegar em jákvæð áhrif lýsingar á vöxt lamba mjög athyglisverð og dæmi um niðurstöður sem eiga að geta hagnýst bændum á beinan hátt. A tilraunabúinu á Hesti em í farvatninu ffekari rannsóknir á mismunandi aðferðum við eldi sláturlamba, bæði á beit og innandyra. Þegar þetta er ritað stendur yfir tilraun með beit slát- urlamba á mismunandi tegundir grænfóðurs síðsumars, þar sem lömbin em ýmist látin ganga undir mæðmm sínum til slátmnar eða vanin undan í júlílok. I haust verður svo gerð tilraun þar sem Framhald á bls. 43. | 34 - Freyr 8/2002

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.