Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.2002, Síða 54

Freyr - 01.09.2002, Síða 54
Ályktanlr aflalfundar Lands- samtaka saufiflárbanda 2002 Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda var haldinn á Bifröst í Borgarfirði dagana 24. og 25. júní sl. Hér á eftir fara helstu ályktanir fundarins, en fundargerðin, ásamt öllum ályktunum fundarins, er að finna á heimasíðu Bændasam- takanna. www.bondi.is Bætur fyrir línubrjóta „Aðalfúndur Landssamtaka sauðfjárbænda 2002 beinir því til stjómar LS að beita sér fyrir því að Sauðijárveikivömum ríkisins verði gert að bæta á raunvirði þær ær sem gerst hafa línubrjótar.“ Greinargerð. I ljósi þeirra breytinga sem orðið hafa á innleggi fyrir ær sem em línubrjótar þykir fundinum eðlilegt að kreijast bóta frá Sauðíjárveikivörnum ríkisins þar sem um allverulegt tjón getur verið um að ræða hjá bændum. Greiðsla fyrir ULL VERÐI TRYGGÐ „Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda 2002 hvetur stjóm LS til samvinnu við stjóm ISTEX og aðra hagsmunaaðila til að leita leiða til úrbóta vegna erf- iðrar stöðu ullariðnaðarins og tryggja greiðslur til bænda fyrir ull. Mjög brýnt er að fundin sé var- anleg lausn á rekstrarvanda ullar- iðnaðarins.“ Rannsókn á vanhöldum Á SAUÐBURÐI „Aðalfundur Landsamtaka sauðfjárbænda 2002 skorar á stjóm LS að sjá til þess að ítarleg rannsókn fari fram á vanhöldum á sauðburði." Greinargerð. A undanfomum ámm hefur borið meir og meir á svokölluð- um dauðfæddum lömbum. Geml- ingar em geldir í stómm stíl, lík- lega látið það snemma á með- göngu að það fer fram hjá mönn- um. Ef um er að ræða sama or- sakavald í báðum þessum tilfell- um, þá er þetta einn alstærsti ein- staki tjónvaldur í sauðfjárrækt. Því þarf að reyna að fá úr því skorið hver orsakavaldurinn er, hvort og þá hvemig hægt er að stemma stigu við honum og koma þeirri vitneskju á skilvísan hátt út til sauðfjárbænda. Verðmyndun á smásöluverði SAUÐFJÁRAFURÐA „Aðalfúndur Landssamtaka sauðfjárbænda 2002 beinir því til stjómar LS og Markaðsráðs kindakjöts að kanna verðmyndun á smásöluverði sauðfjárafúrða. Nauðsynlegt er að það liggi ljóst fyrir hve mikið bóndinn, sláturley- fishafinn, vinnsluaðilinn og smá- salinn fær af þeirri upphæð sem neytandinn greiðir fyrir vömna.“ Hraðað verði úthlutun 7500 ÆRGILDA „Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda 2002 ítrekar til- lögu frá fyrra ári þess efnis að hraðað verði úthlutun ígilda 7500 ærgilda til styrkingar sauðfjárbú- skapar á jaðarsvæðum LS GEFI ÚT VIÐMIÐUNARVERÐ SAUÐFJÁRAFURÐA „Aðalfúndur Landssamtaka sauðfjárbænda 2002 samþykkir fela stjóm LS að gefa út viðmið- unarverð sauðfjárafurða." Markaðsgreining Á LAMBAKJÖTI „Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda 2002 fagnar þeirri vinnu sem lögð hefúr verið í markaðsgreiningu á lambakjöti. Fundurinn hvetur sláturleyfis- hafa, verslanir og Markaðsráð kindakjöts til að nýta sér þær upplýsingar sem þar koma fram til markvissrar markaðssóknar innanlands, þar sem ljóst er að sala á kjöti er það sem skiptir sauðfjárbændur öllu hér eftir sem hingað til.“ Greinargerð: Söluaðilar þurfa að nýta sér markaðsgreininguna til að ná með sem einföldustum hætti til neytenda. Auka þarf sölu til ferðaþjón- ustuaðila með öllum tiltækum ráðum. Auka þarf sölu til mötuneyta, sérstaklega skólamötuneyta, því þar em neytendur framtíðarinnar. Samræming á KJÖTMATI MILLI SLÁTURHÚSA „Aðalfúndur Landssamtaka sauðfjárbænda 2002 leggur þunga áherslu á að haldið verði áfram markvissu starfi að sam- ræmingu kjötmats milli slátur- húsa. Slík samræming er skilyrði þess að kjötmatið sé virkur þáttur í sölu og markaðssetningu dilka- kjöts frá sláturhúsum til kjöt- vinnslna og verslana. Þá telur fundurinn mikilvægt fyrir ræktunarstarfíð í viðleitni til | 54 - Freyr 8/2002

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.