Skátablaðið - 01.12.1950, Side 13
S-SAGAN:
Felixmynd.
Hvar er smalinn?
Skrítla.
Nonni: Hvaða skó ætti ég að hafa við
þessa „style“ sokka?
Kalli: Hné há gúmmístígvél.
Það herðir líkama og sál að fara út í öfsa-
veður, rok, rigningu eða kafbyl, þó ekki
sé nerna milli húsa. Það göfgar og hressir
ekki síður en að vera úti í blíðskaparveðri
og sólskini, eða ganga út á heiðkvöldum
með tunglsljósi og norðurljósum. Veður-
guðirnir hafa verið strangir kennarar kyn-
slóðanna, einkurn Vetur konungur.
Skátar hafa áður verið brautryðjendur.
Þeir geta orðið það á ný, kjarkur og karl-
mennska er ennþá það sem ísland þarf.
Hvort tveggja þroskast í fangtökum við
veður og vind.
Hefjið útiæfingar.
Helgi Tómasson.
STJÓRN SKÁTANS
SIGRAÐI.
Lesendur Skátablaðsins muna eflaust eftir
því, að í Skátajólum 1949 birtist F-saga, og
svo í 1. tölubl. þessa árs birti blaðið svo
tvær beztu F-sögurnar, sent bárust. Nú er
hér S-saga, og eins og áður biðjum við les-
endur blaðsins að spreyta sig og sentja fram-
hald þessarar sögu eða sernja aðra nýja og
senda til Skátablaðsins. Eftirfarandi S-sögu
hefur skátastúlka í Vestmannaeyjum samið:
Skátinn Sveinbjörn Snorrason skyldi
skreppa smá skynditúr suður, síðla sumars,
sem sé sunnudaginn sextánda september.
Seglskipið Signý sigldi stormbyr snemma
sunnudagsins. Skammt sunnan stóru skerj-
anna stækkaði strax sjólagið. Skipið slingr-
aði, svo Sveinbjörn svimaði sjósjúkan.
Stormurinn skóf sjóinn, svo særoksstrók-
arnir skýldu skerjóttri s'tröndinni, skammt
sunnan Selskerjanna, sem sjófarendum
sýndust sannarlega skelfileg.
Stórviðrið skók skipið, sundursleit seglin,
stór sem smá, svo Signý slingraði stjórn-
laus. Skipstjórinn snapsaði sig sífellt
skammarlega, sömuleiðis stýrimaðurinn,
skeyttu slælega skipstjórninni, svo síðast
steinsofnuðu svínin. .
Sveinbjörn sá skipstjóraskömmina svín-
fulla sleppa stýrinu, settist sjálfur sem
skjótast sem stýrimaður. Skipið skoppaði
stórkostlega, svo Sveinbjörn skorðaði sjálf-
an sig, stritaðist súrum svita. Sjór setti
stýrissveifina skarplega. Skipið skyldi
sleppa. Smám saman sveigði skipið. Skerin
skelfilegu struku skipssíðuna.
Stjórn skátans sigraði.
Skdtastúlka.
skÁtablaðið
93