Skátablaðið


Skátablaðið - 01.12.1950, Page 27

Skátablaðið - 01.12.1950, Page 27
Já, stúlkur mínar. Nú langar mig til að minnast á annað, og það eru blessuð jólin. sem bráðum eru komin. Eg var rétt í þessu að lilusta á söng frá útvarpinu. Þar var verið að syngja: „Friður á jörðu, fagna þú maður, Frelsari heimsins fæddur er.“ Ef mennirnir vildu trúa þessu og lifa sam- kt æmt þeirri trú. Já, þá væri dásamlegt að lifa. Því j)að er satt. Frelsari hcimsins er fæddur, og við ættum öll að fagna og gleðj- ast. Þá væri friður á jörðu. Því það getur aldrei ríkt ófriður hjá þeim mönnum, sem fagna og eru glaðir. Þeir, sem fagna komu Frelsarans, gleðjast af hjarta og óska hvorir öðrum alls hins bezta, af því að kærleikur- inn er jaað afl, sem ræður orðunt þeirra og gerðum. Eða á einfaldari hátt. Frelsarinn er kominn, hann elskar okkur og biður okkur um að elska alla menn. Þá verður friður á jörðu. Þetta eiga blessuð jólin að minna okkur á. Nútímajól eru hjá mörg- um, hátíð allskonar glingurs og hégóma, frí frá daglegum störfum, helzt lengra en venju- lega, og þá um leið eins mikið af skemmt- unum eins og hægt er að komast yfir. Hið raunverulega gildi jólanna gleymist alveg. Stúlkur mínar. Setjist J)ið nú niður örlitla stund og gefið ykkur tíma til að hugsa út í þetta. Af hverju höldum við heilög jól? Erum við virkilega að halda fæðingarhátíð Frelsara okkar hátíðlega af ])ví við gleðj- umst yfir fæðingu hans og óskurn eftir friði á jörð. Eða erum við að nota þessa mestu og helgustu hátíð kristninnar til þess eins að skemmta okkur — éta — drekka og vera glöð, sem ekkert á jró skylt við hina sönnu jóla- gleði. Við skulum hugleiða þctta. Ykkur finnst nú líklega, ég hafa verið full alvarleg núna. En mér finnst við verðum líka að hugsa um alvöruna. Kannske |)ið vilduð skrifa mér um þetta. Nú verð ég víst að fara að slá botninn í þetta bréf. Það er margt annað, sem mið langar til að segja við ykk- ur, bæði gaman og alvara, en ])á verður bréfið of langt. Það er aðeins eitt, sem þið skulttð ávalt muna mér viðkomandi og það er það, að mér þykir vænt um ykkur og vil ykkur vel. Og það verður að virða görnlu fólki það til vorkunnar, ef það skyldi vera nokkuð lang- dregið. 1 næsta bréfi Jrarf ég að segja ykkur frá ýmsu skemmtilegu, því |>að er mesta furða, hvað ég fylgist með, þó ég sé komin á Jrenn- an aldur. Svo óska ég ykkur öllum gleðilegra jóla og Guðs friðar. Ykkar amma gamla. SKATABLAÐIÐ T07

x

Skátablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.