Skátablaðið


Skátablaðið - 01.12.1950, Síða 15

Skátablaðið - 01.12.1950, Síða 15
andlit komumanns, þckkti hann skipstjóra sinn. Enginn spurði, hvar hann hefði fengið búning þenna — eða jxtkann, sem hatin bar á öxl sér. „Hafið einn smábátanna til reiðu,“ skip- aði Björn. „Hve marga menn þarftu?“ spurði stýri- maður. „Engan.“ „Engan .. .?“ Stýrimaður starði opnum munni á Björn. „Þú .. . þú hefur þó ekki í hyggju að fara einn út í skipið? Það væri óðs manns æði.“ „Verið rólegir, félagar. Þeir gera mér ekk- ert illt, nrér aumum bónda, sem aðeins vill verzla við þá. En verið reiðubúnir. Undir eins qg þið heyrið mig flauta, raannið þið þrjá báta og róið af öllum mætti að skip- inu, en eins hljóðlega og mögulegt er. Þið skiljið mig?“ „Já,“ svöruðu þeir einum munni. Stuttu síðar var Björn horfinn. Afeð sterkum áratogum réri hann í átt- ina til stóra skipsins, en þar gat að líta for- vitin andlit gægjast yfir borðstokkinn. Ahöfnin hafði tekið eftir honum og gat sér til, hver gesturinn mundi vera og hvert erindi hans væri. „Hver ert þú?“ hrópuðu hásetarnir, þeg- ar Björn var kominn að skipinu. „Gvendur á Fjalli," svaraði hann. „Má ég korna um borð Ég er hérna með ýmsar vör- ur í pokanum mínum.“ Skömmu síðar var Björn kominn upp í skipið. Hann leit athugulum augum kring- um sig. Þetta var fallegt skip. Sannarlega girnilegt herfang. Ekki leið á löngu þar til verzlunin var í algleymingi. Áfergjan var mikil. Hásetarnir voru ekki lengi að uppgötva, að þessi ókunni verzlunarmaður var ekki með öll- um mjalla og bar ekki fremur skynbragð á SKÁTABLAÐIÐ En þegar þeir voru kornnir hálfa leið, dró Björn uþp hníf og skar á reipið. verzlun en kötturinn, og sjómennirnir voru ekki seinir til þess að hagnýta sér það. Og bráðlega var allt innihald pokans selt. „Hcfur þú aldrei stigið fæti á skip sem þetta?“ spurði einn hásetinn, sem leit á áhuga verzlunarmannsins sem einskæra for- vitni. Björn hristi höfuðið. „Hvað er þetta?“ spurði hann, um leið og hann benti á sigluna. „Til hvers er þetta notað?“ Hásetarnir hlógu dátt. En livað hann var heimskúr! „Ég skal segja ykkur, ég kem langt innan úr sveitum," útskýrði Björn. Það, sem næst vakti athygli hans var skipspallurinn og 95

x

Skátablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.