Skátablaðið


Skátablaðið - 01.12.1950, Page 17

Skátablaðið - 01.12.1950, Page 17
Hinn þekkti skátaforingi og rithöfundur William Hillcourt, sem ritað hefur m. a. amerísku skátabækurnar „Handbook for Patrol leaders" og „Handbook for scout masters", skrifar mikið í ameríska skátablað- ið „Boys Life“. Hér fara á eftir nokkrir leikir, sem hann skrifar um í „Boys Life“: Einvigi. Tveir skátar standa andspænis hver öðr- um, og taka sér þannig stöðu á gólfinu að þeir séu sem stöðugastir. Þeir grípa um ca. 5 feta langt prik eða skátastaf báðum hönd- um, þannig að vinstri hendin sé innan við hægri hönd keppinautsins. Þegar merki er gefið, reynir hver um sig að láta endann á stafnum nema við gólfið á hægri hlið. Tvis- var af þremur vinnur. Tumi nýliði. Veldu þann skáta úr flokknum, sem er snjall að koma fyrir sig orði, og klæddu hann eins og nýliða. Láttu hann koma inn með tösku fulla af ýmsu dóti, sem nýliðinn lætur sér detta í hug að hafa með sér í úti- legu. Þegar hann hefur tekið allt upp úr töskunni, þá felur þú það, en lætur flokkinn skrifa upp það, sem þeir muna af útbúnaði Tuma. Sh.rítltir. Drengur við bónda: Viltu lána mér hross? Hvað langt? spurði bóndi. Það lengsta sem þú átt, því við erum fjórir, svaraði drengur. ★ Viðskiptavinurinn: Þjónn, hvað er þessi fluga að gera í súpunni minni. Þjónninn: Hún er að synda — herra. SKATABLAÐIÐ 97

x

Skátablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.