Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.02.1911, Blaðsíða 6

Sameiningin - 01.02.1911, Blaðsíða 6
358 hinna eldri, sem þan líta upp til, er þau sjálf finna á sér, að þau eru að verða fulltíða konur og karlmenn? Auð- vitað. Þessi beina leið, og að því er virtist eina eðli- lega leiðin, er ófœr. Fullorðna fólkið, sem mestan hef- ir áhuga fyrir kristindóminum, verðr í öllum söfnuðum að taka sig saman um þessa lífsnauðsyn og byrja á biblíudeildinni. Þá vaxa ungmennin eftir ferming þangað upp til þeirra, feðra og mœðra, sem þar eru fyrir, og sitja þar síðan kyrr lir því. tJr þeirri upp- sprettu streymir svo guðs orð inn í beimilislíf safnaðar- fólksins. Og þá fer mönnum verulega að skiljast, bvað í því felst, er þeir í Jesú nafni biðja guð með orðunum í faðir-vor-inu: „Til komi þitt ríki.“ Mikið liefir í sumurn deildum lútersku kirkjunnar í beimsálfu þessarri verið gjört sunnudagsskólanum til eflingar. Engu að síðr er lúterska kirkjan þó engan veginn á undan að því er sérstaklega það efni snertir, sem hér befir nú verið vakið máls á — það að stofnan sú — sd.skólinn — nái jafnvel fyrst og fremst til full- orðins fólks í söfnuðunum. 1 þeirri grein eru sumar aðrar kirkjudeildir áreiðanlega á undan vorri kirkju — lútersku kirkjunni. Að einu leyti er kirkjufélag vort hið íslenzka — ekki stórvaxnara en það er — á undan öllum öðrum lútersk- um kirkjufélögum í álfunni: Það hefir orðið fyrir þeirri sérstöku mótlætisreynslu, sem af því befir staf- að, að ‘nýja guðfrœðin’ brauzt þar inn og krafðist þess að mega hafa þar friðhelgi. Það hefir ekkert annað kirkjufélag með lútersku nafni í Vestrheimi reynt. Þar er félag vort á undan. Sé þá reynsla sú íslenzkum safnaðalýð liér hvöt til þess — og bending frá drottni um það, að kirkjufélagið á einnig að verða með þeim fyrstu í hinni lútersku kirkju liér vestra í því að koma fullorðna fólkinu inn í sunnudagsskólann.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.