Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.02.1911, Qupperneq 15

Sameiningin - 01.02.1911, Qupperneq 15
367 þar undir uppskeru með vinnu og bœn; ætti bann þá með þetta fyrir augum, að láta Krist fá svo mikið vald yfir sér og verða sér í lífinu svo greinilega allt í öllu, að frelsarinn fái notað hann svo, að hann með persónu- legri þjónustu og fyrirbœn geti orðið til hjálpræðis og lífs mörgum öðrum, sem verða fyrir því óhappi að prestrinn þeirra leiðir þá ekki til Krists. En háalvar- legt vafamál er það, livort látið skuli framvegis óátalið hið hættulega og aumkunarverða ástand, sem af því leiðir, að prestr þessi fer svo herfilega með embættis- köllun sína. Getr ekki safnaðarlimr þessi, sem svo réttilega lætr sér annt um málið, borið sig útaf því sam- an við einhverja aðra safnaðarmenn, þá er láta Krist, en ekkert annað, vera sér líf, og með þeim leitað bend- ingar frelsarans um það, hvað þeir, að vilja hans eigi að gjöra til þess að varðveita fólk hans frá hættunni? Sé beðið fyrir prestinum sjálfum 0g í kærleik vitnað persónulega fyrir honum um styrk þann og fögnuð, sem lífið í Kristi hefir í för með sér, þá getr svo farið, að við það verði hann brátt leiddr inn í ljósið og sannleik- ann og söfnuðrinn fái svo notið hans. En geti þetta ekki orðið bráðlega, þá skilst oss, að það myndi vera bein skylda þeirra, sem Kristr liefir falið mál þetta, að gangast fyrir því, að prestinum sé vikið úr embætti.“ BÓNORÐ ÍSLEIFS GIZURARSONAR. Eftir V. Briem biskup. 1. Hver svo geyst frá garði ríðr gumi bjartr, tignarfríðr ? Ei hef eg á æfi minni augum litið fegra mann. Hvaðan er hann? hvert nú fer hann? hverrar stéttar maðr er hann? Ilvaða erindi’ átti’ hann hingað? eða hví svo skjótt fór liann?“ 2. Þannig mælti mærin Dalla, málóð var, svo skildist varla.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.