Litli Bergþór - 20.06.1995, Síða 11
Leikdeild Umf. Bisk.
Hólmfríður
og Guðný þenja
raddböndin.
sem komu á þennan
einstæða atburð.
Ætlunin með þessum
dansleik var að auka
samskipti
leikfélaganna í
þessum hreppum
enda ætla
Hrunamenn að bjóða
okkur til sín á næsta
ári. Mjög vel var
staðið að þessum
dansleik, góð
skemmtiatriði og
veitingar handa öllum
og síðast en ekki síst góð hljómsveit.
Að lokum vil ég fyrir hönd stjórnar Leikdeildar
U.m.f. Bisk. þakka öllum leikfélögum sem tóku þétt í
starfseminni með okkur í vetur kærlega fyrir veitta
aðstoð og óska öllum Tungnamönnum nær og fjær
gleðilegs sumars.
Brynjar og Egill í vel
heppnuðum leikþœtti
leikdeildar á grímuballi.
Hafdís, Margrét og Oddný í
léttum söng á grímuballi.
höfðu allir mjög gaman af því og gagn, ekki síst
unglingarnir. Ekki er víst að haldið verði annað
svona námskeið, því leikdeildin borgaði þetta mikið
niður en við höfum hreinlega ekki efni á því.
Fullmenntaður hópur leiklistarfólks
með kennara sínum.
Á liðnum vetri hefur starfsemi leikdeildar verið
með mesta móti, þrátt fyrir að ekki var sett upp
leikrit, en oft hefur brunnið við að starfsemin hefur
dottið niður þau ár.
Eina kvöldstund skömmu fyrir jól komum við
saman og skemmtum hvert öðru með ýmsum
leikjum og söng.
Námskeið í leikrænni tjáningu og spuna var
haldið helgina 19.-20. febrúar undir ágætri leiðsögn
Ólafar Sverrisdóttur frá Hrosshaga. Þátt í
námskeiðinu tóku 13-15 manns, unglingar og
fullorðnir og var það alltof fátt, ef tekið er mið af
kostnaðinum. Þeir sem tóku þátt í námskeiðinu
Leikdeildin var beðin um að aðstoða við
skemmtiatriði á árshátíð Hestamannafélagsins Loga
þann 11. mars og urðum við við þeirri beiðni. Allt
þetta tókst með miklum ágætum eins og flestir sem
þar voru ættu að muna.
Lokahnykkurinn fyrir sumarið var svo grímu-
dansleikur í
Aratungu 1.
apríl. Þangað
var boðið
leikdeildum
Hrunamanna og
Gnúpverja.
Gnúpverjar
gátu ekki komið
þennan dag
vegna anna, en
Hrunamenn
mættu og höfðu
mjög gaman af
og allir aðrir
Egill Jónasson.
Litli - Bergþór 11