Litli Bergþór - 01.03.2003, Page 6
Hvað segirðu til?
byggingarinnar, fyrirtæki lýstu yfir að þau ætluðu að
gefa gler og málningu og einstaklingar hétu gjöfum.
A fyrstu vikum ársins var brúin þrönga á Laugá
vestan við Geysi felld og hólkur, sem rúmar tvær
akreinar, settur í staðinn. Jafnframt var vegurinn
báðum megin við brúna hækkaður verulega.
í febrúar byrjuðu J V J — verktakar að bera
ofaní Tunguhverfisveg og þeir munu einnig leggja
eins km kafla af vegi að brú yfir Hvítá. Þá eru
gefin fyrirheit um 200 milljónir kr. til byggingar
Gjábakkavegar af þeirn 6,3 milljörðum kr, sem veitt
verði til að auka atvinnu á næstu 18 mánuðum.
Nokkuð hefur heimst af fé frá vetrarsólhvörfum.
Fyrir jólin fundust tvö lömb við Selhól syðst á
Haukadalsheiði og skömmu eftir áramót birtust
önnur tvö á milli húsa við Geysi. Öll voru þau frá
Austurhlíð. Um 30 kindur munu hafa heimst úr
Efstadalshögum síðan um áramót. Þar af voru 10
frá Austurhlíð en hinar úr Grímsnesi og Laugardal.
Talið var að þessar kindur hefðu verið famar að leg-
gja nokkuð af. Ær kom sjálf í hús í Bræðratungu í
janúar og á slóð hennar fundust tvö lömb.
Tófur hafa oft sést á ferð í sveitinni í vetur og a.
m. k. 8 fallið fyrir vopnum veiðimanna.
Snemma í febrúar var fundur um fjárhagsáætlun
Bláskógabyggðar fyrir þetta ár. Þar gerði formaður
veitustjórnar grein fyrir stöðu stofnana, sem undir
hana heyra, og formaður fræðslunefndar greindi frá
skólamálum og hugmyndum að breytingum í því
efni. Formaður hreppsráðs lagði fram drög að fjár-
hagsáætlun hreppsins, sem verður tekin til seinni
umræðu í hreppsnefnd síðar í mánuðinum.
Búnaðnaðarfélag Biskupstungna hélt sína árlegu
kvöldvöku í Skálholtsskóla í lok febrúar. Þar var
afrekshorn Búnaðarfélagsins og Búnaðarsambands
Suðurlands afhent, og hlaut Arndís Jónsdóttir, skóla-
stjóri Reykholtsskóla, það að þessu sinni fyrir
árangursríkt starf. Sveinn A. Sæland, oddviti Blá-
skógabyggðar flutti þar erindi um skipulagsmál og
aukningu byggðar í Biskupstungum.
Nemendur Menntaskólans að Laugarvatni sýndu
leikritið Bullets over Broadway í leikstjórn Ólafs
Jens Sigurðssonar tvisvar í Aratungu í byrjun mars,
fyrst nemendum og kennurum skólans en tveim
dögum síðar öðrum sem sjá vildu.
I vetur hefur verið unnið að byggingu fimm húsa
í Reykholtshverfi, og mun a. m. k. eitt þeirra verða
íbúðarhæft fyrir vorið en væntanlega flest áður en
langt er liðið á sumar.
Eiríkur Sæland, sem var bóndi á Espiflöt allan
síðari hluta síðustu aldar en hefur verið búsettur á
Selfossi síðan, lést í nóvember. Útför hans fór fram
frá Selfosskirkju.
Jón Sæmundur Kristinsson frá Brautarhóli, sem
hefur verið til heimilis á Selfossi síðustu ár, lést
undir lok mars. Útför hans fór fram frá Skálholts-
kirkju en hann var jarðsettur á Torfastöðum.
A. K.
Þarft þú að fara í apótek?
Útibú okkar í
LAUGARÁSI
er opið alla virka daga kl. 9 -17.
Verið velkomin.
ÁRNES ÖAFÖTEK
______Útibú Laugarási, sími 486 8655
Litli Bergþór 6