Litli Bergþór - 01.03.2003, Síða 15
Hreppsnefndarfréttir
verkefni á nefndina. Svar formanns byggðaráðs:
Vinna við gerð erindisbréfa er í gangi með nefndum
og er stefnt að því að klára þá vinnu í apríl.
Fyrirspurn um samþykktir sveitarstjórnar.
Drífa minnir á að sveitarstjórn samþykkti á fundi
sínum 6. ágúst 2002, tillögur byggðaráðs, af fundi
þess 31. júlí 2002, um endurskoðun á innihaldi
samnings skólastjóra Grunnskólans á Laugarvatni.
Drífa áréttar að brýnt er að framfylgja samþykktum
sveitarstjómar svo fljótt sem auðið er en það er
henni ekki kunnugt um að hafi verið gert í þessu til-
felli. Svar oddvita: Á fundi byggðaráðs 31. júlí
2002 var lagt til að samningur við skólastjóra yrði
framlengdur um eitt ár og að innihald hans yrði
endurskoðað. Samningurinn var framlengdur um
eitt ár en í ljósi heildarendurskoðunar í skólamálum
á svæðinu var ákveðið að bíða með endurskoðun
samningsins.
Hitaveitur Bláskógabyggðar. Drífa leggur til að
unnið verði hratt og örugglega að því að ná saman
öllum veitueigendum til að skoða möguleika á því
að sameina allar hitaveitur í sveitarfélaginu, hvort
sem um er að ræða einkahitaveitur eða hitaveitur í
eigu Bláskógabyggðar. Markmiðið með því væri að
gera eina öfluga hitaveitu í Bláskógabyggð, en
öflugt veitufyrirtæki hlýtur að vera betur í stakk
búið til að takast á við útvíkkun hitaveitu um alla
Bláskógabyggð. Eins hlýtur sameinað stærra veitu-
fyrirtæki að gefa aukna möguleika í samvinnu eða
samruna við, enn stærri
orkufyrirtæki.
Sveitarstjórn vísar
tillögunni til veitu-
stjómar til umsagnar.
Raflagnir - Viðgerðir
Tek að mér nýlagnir, hönnun raflagna og alla
almenna rafvirkjavinnu ásamt tækjaviðgerðum.
Efnissala og varahlutaþjónusta.
Fljót og góð vinna.
Sumarbústaðaeigendur athugið að ég sæki
um öll leyfi fyrir heimtaug að
sumarhúsum og lagningu raflagna.
Jens Pétur Jóhannsson
LÖGGILTUR RAFVERKTAKI
HEIMASIMI 486 8845
Verkstæði sími 486 8984
GSM 893 7101
Heimasímar: Loftur: 486 8812 883 1289 ..llllll nVVÉlAVERKSTÆOiyr G i Heimasímar: uðmundur: 4868817 Helgi: 482 3182 illlm
m IÐU • BISKUPSTUNGUM ■
SlMI 486-8840 • FAX 486-8778
KT. 490179-0549
Viðgerðir á búvélum
og öðrum tækjum í landbúnaði.
Bifvélaviðgerðir - Smurþjónusta
Olíusíur í bíla og dráttarvélar
Litli Bergþór 15