Skólablaðið - 01.05.1992, Blaðsíða 57
SKÓLABLAÐIÐ 57
EÐLISFRÆÐIKEPPNI:
Afi minn fór á
honum Rau
Kátt í koti hjá KSS.
hafa breytt miklu í lífi mínu. Ég hef öðlast nokkuð sterka
trú á Jesú Krist og er hún það mikilvægasta sem ég á í dag.
Þetta eru stór órð sem ég vona að ég geti vitnað í allt mitt
líf. Það er vegna þess að í dag er ekki töff að vera kristinn
og því kannski erfiðara fyrir mig og aðra kristna einstak-
linga en hinn almenna borgara að viðurkenna skoðun
okkar, tilfinningar og standa fyrir máli okkar í skólanum
og annars staðar . Sem dæmi má nefna að í MR eru aðeins
fjórir KSS-ingar af rúmlega 900 nemendum.
Tilgangur minn með þessari grein er ekki að vera á norna-
veiðum fyrir KSS heldur að vekja þig til umhugsunar um
eigin trú og líf. í upphafi máls míns nefndi ég það að vera
í stuði með Guði sem er það sem ég og KSS-ingar reynum
að vera. En líf kristinna einstaklinga er enginn dans á rós-
um og við erum ekkert frábrugðnari en þú. Ég veit ekki
með hverjum þú deilir gleði þinni en ég vona að þú megir
einhvern tímann kynnast Guði ef þú hefur ekki þegar gert
það og því stuði sem fylgir að lifa með honum.
Höfundur er stuöbolti.
Vissir þú...
- að heimsins stærsti sleikibrjóstsykur var 2608 kg
- að stærsta pizza sem bökuð hefur verið var rúmlega 1200
tommur.
- að þetta er ekki auglýsing frá Kristilegu skólasamtök-
unum.
- að við elskum þig!
- að Skólablaðið er víðlesnasta Skólablað Skólans.
- eftir Þorstein Arnalds VI.X.
s
hverju vori þegar daginn tekur að lengja er hald-
in eðlisfræðikeppni. Mörgum finnst kannski ver-
ið að bera í læki hinna fullu bakka. Einhvers-
konar tíska virðist það vera að taka þátt í ýmiss konar
andlegri keppni. Mönnum finnst af einhverri ástæðu hin
mesta upphefð í því að mæta í keppni, lenda í neðsta sæti
og gera sig þannig að algeru fífli.
Menntskælingum hefur nú tekist að tapa í spurninga- og
ræðukeppni framhaldsskólanna fjögur ár í röð. Menn hafa
einnig lagt sig fram um að tapa keppni sem kennd er við
stærð- og eðlisfræði. Hefur þetta oft tekist með ágætum.
Þetta skólaárið brá þó svo við að á efra stigi stærðfræði-
keppninnar sigraði Emmerringur er Bjarni Vilhjálmur
Halldórsson nefnist. Á neðra stigi tóks M.R.-ingum betur
upp en þar bar séní úr Verzló sigur úr býtum (Haukur
Eggertsson þið vitið).
Nú hefur einn samskælinga okkar gert okkur þá skömm
að sigra keppni eðlisfræðanna. Sá heitir Halldór Orn
Ólafsson og er best þekktur fyrir að vera úr Garðabænum.
Færri vita hins vegar að drengurinn tók þátt í Ólympíu-
leikum eðlisfræðinga síðastliðið sumar á Kúbu og skrifaði
grein um þá í fyrsta skólablað haustmisseris.
Fyrst tekur þó steininn úr þegar skoðuð er röð fjórtán
efstu. Af þeim eru sex úr Menntaskólanum og allir úr
ó.bekk X. Fuglarnir eru (í stafrófsröð auk HÖÓ): Anna
Margrét Halldórsdóttir, Baldur Steingrímsson, Björg Þor-
steinsdóttir, Einar Ágústsson og Katrín Ásta Gunnars-
dóttir. Þeim var öllum boðið að taka þátt í úrslitakeppni
15.-16. mars. Björg sá sér þó ekki fært að vera með og
kemur í hennar stað Bjarni Vaff H. 5.-X sem varð í fimmt-
ánda sæti. Þess má reyndar geta að Sigurður Freyr Mar-
inósson sama bekk var jafn Bjarna að stigum en björninn
telst betri kostur þar sem hann er yngri.
Athygli vekur að nemar þeir sem þessum árangri ná,
stunda allir nám við Eðlisfræðadeild I hjá Davíð Þor-
steinssyni og er ekki að efa að honum má einum manna
þakka þennan stórglæsilega árangur. Hefur komið til tals
að Davíð hljóti Nóbelsverðlaun fyrir kennslu sína og væri
það í fyrsta skipti sem maður sem ekki ætti að baki stór-
kostlegar uppgötvanir (að mati Nóbels) fengi verðlaunin.
Höfundur er forseti Vísindafélagsins.
Niður með sncmmbýzantísku kirkjutónlist.