Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1952, Side 40

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1952, Side 40
20 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA út í æsar. Þá er hið þriðja, hug- rekkið, sem til þess þarf að segja satt um vini sína stundum, og fella ryk á frægðarskjöld góðra manna í gröf- inni.“ Og um þessar gáfur Jóns og skap- gerð gat Stephan ekki rangt, þó við- kynning þeirra væri að mestu eða öllu leyti gegnum bréfaskifti. „Sann- leiksást,11 „glöggleiki,“ „næmleiki skáldsins“ og „hugrekki;“ þessu öllu kyntist ég að nokkru sem gestur á heimili Jóns við Siglunes og annars staðar þar sem fundum okkar bar saman. Höfðingslund hans var einnig auðsæ og auðfundin hverjum þeim sem gisti hann. Ég var þar næturgestur oftar en einu sinni. Heimilið var meðal hinna betri þar í sveit þó önnur hús í sveitinni væru stærri og veglegri að ytri sýn, en þegar inn var komið og maður kynt- ist heimilisfólkinu, stækkaði húsið og varð að höfðingjasetri. Heimilis- fólkið var alt glatt og alúðlegt í við- móti og lét sér í öllu ant um þægindi gestsins. Viðræðurnar við húsbónd- ann voru ærin nóg skemtun, sem maður gat unað við fram á nætur. Hann var glaðlegur í viðmóti og tal- aði af fjöri og áhuga um stjórnmál, trúmál, strauma og stefnur tímans, skáldskap og bókmentir. Skoðanir sínar um öll þessi mál lét hann í ljós hispurslaust en með sanngirni og stilti vel í hóf. Aldrei heyrði ég hann fara meiðandi orðum um þá, sem verið höfðu andstæðingar hans. Hann kannaðist fúslega við kosti þeirra og um suma þeirra fór hann vingjarnlegum orðum. Það voru málefnin en ekki mennirnir, sem deilt var um. „Að hata til eilífðar málstað eins manns, en manninum sjálfum að bjarga,“ sagði Stephan G. Þetta er sú lífsregla, er Jón hefði gjarnan viljan fylgja. Hann unni mjög skáldskap og fögrum listum og hvers kyns íþróttum. Alt þetta vildi hann efla með þjóð sinni og hann hækkaði í sessi í hvert sinn, er frétt barst honum um það, að ís- lendingar hefði getið sér góðan orð- stír á þessum sviðum, enda bar hann í brjósti fölskvalausa ást til lands og þjóðar. Þó var hann enginn „nesja- maður“ í þessum sökum; til þess var hann alt of víðsýnn og hafði glöggv- að sig á því, löngu á undan Wendell Wilkie, að þessi heimur okkar er „einn heimur.“ Ég hygg, að af ís- lenzku skáldunum hafi honum þótt vænst um Þorstein Erlingsson og Stephan G. Stephansson, að minsta kosti var oftast til þeirra vitnað þeg- ar við áttum tal saman, og ég held ekki að ég hafi átt þar alla sök. Hitt veit ég, að okkur þótti báðum gott að eiga sálufélag með þeim. Jón hafði viðkvæma lund. Þess vegna voru honum börn sérstaklega kær og þess vegna var hann sjálf- kjörinn málsvari allra þeirra, er báru skarðan hlut frá borði lífsins. Þetta skapar hinn rauða þráð, er rekja má í gegnum allan hans starfs- feril, og sem er uppistaðan í stefnu hans í þjóðmálunum. Hann barðist fyrir efnalegu sjálfstæði og pólitísku sjálfstæði þjóðar sinnar; en hann vildi líka hefja hinar svokölluðu lægri stéttir í landinu, bændurna og vinnufólkið, og bæta kjör þeirra. Þess vegna voru líka embættismenn og „heldri menn“ yfirleitt á móti honum. Hann var glöggskygn á hverja hreyfingu andstæðinga sinna og fljótur að sjá hvar fiskur lá undir
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.