Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1952, Page 61

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1952, Page 61
ÚTVERÐIR NORRÆNS ANDA OG NORRÆNNA FRÆÐA 41 Sibelius hefur verið skrifað frá því safnið byrjar og fram á þennan dag, °g þar sem hann er nú að semja æfi Sibeliusar, má geta nærri hvert gagn hann hefur af safninu til þess. Geta rná þess að Jón Sigurðsson átti mikið úrklippusafn um ísland, svo líklega gætu Vestur-íslendingar gert margt óþjóðlegra og ófróðlegra en að byrja á slíku safni fyrir sjálfa sig (í Há- skólanum eða Þjóðræknisfélaginu). Hitt sem þeir ættu að gera væri að gera skrá yfir allar greinar, sögur og kvæði, sem komið hafa í vestur- íslenzkum blöðum og tímaritum. Ég man nú ekki hvort blöðin hafa nokkurntíma haft efnisyfirlit, en sé svo, þá er það mjög langt síðan. Hinsvegar veit ég ekki hvort Heims- kringla og Lögberg hafa spjaldskrá ó skrifstofum sínum yfir innihald sitt, en það mun vera siður flestra blaða hér í Ameríku, þótt fá eða engin nema New York Times gefi út árlegt efnisyfirlit. Eitt af áhugamálum Otto Anders- sons var að safna (aust)-sænskum þjóðlögum, og ef hann hefði alizt UPP nú á dögum mundi hann eflaust hafa farið með hljóðbandavél (tape recorder) út í byggðirnar til að láta karla og kerlingar syngja og kveða ó bandið, en fiðlunga, harpara og harmoníkumenn spila. En af því að hann byrjaði fyrir aldamót þá not- eði hann einungis sitt góða eyra og hefur notað það síðan mest af öllu. En nú mun hann manna fróðastur nm þjóðlög og sögu þeirra á Norður- iöndum, og þegar hið mikla safnrit, Nordisk Kultur, gaf út bindi um niúsík þá var hann ritstjóri þess. Og þótt sænsku þjóðlögin og vísurnar væru aðalviðfangsefni hans, þá hef- ur hann dregið langa nót að efninu bæði út um víða veröld og aftur í aldir. Þannig hafa eigi aðeins finnsk og rússnesk þjóðlög orðið vatn á myllu hans, heldur hefur hann líka farið um Suðureyjar (Hebrides) og Hjaltland hlustað og skrifað upp margt fémætt. Einnig til íslands hefur hann farið að safna rímnalög- Um og hefur í smíðum ritgerð mikla um uppruna þeirra. Er vonandi að honum takist þar að komast þar feti framar en bókmenntasögufræðingar, sem hafa ekki notið söngfræðilegrar menntunar eins og vor ágæti Bjorn Karel Þórólfsson, sem allra núlifandi manna er fróðastur um rímur og bókmenntalegan uppruna þeirra. Otto Andersson er og einn þeirra sem mest hefur ritað um hinn ein- kennilega kvæðahátt Finna, þar sem kvæðamennirnir sitja hvor á móti öðrum, haldast í hendur og róa sér, 0g kveða alltaf á víxl aðra hverja hendingu (vísuorð). Gömlu Kale- vala-kvæðamennirnir notuðu þessa aðferð a. m. k. þegar þeir vildu hafa mikið við. Fram á síðustu ár vissu menn ekki af eldri lýsingu á þessari söngaðferð en þeirri, sem Henrik G. Porthan, 18. aldar fræðimaður í Ábo hafði gefið í frægri ritgerð um skáld- skap Finna, ritaðri 1878. En nýlega fannst önnur heimild um Lappa- galdur kveðinn á sama hátt frá 1730, líklega skrifuð í Ábo. Þeim fræði- mönnunum í Ábo og Helsingfors þótti það því ekki svo lítil tíðindi þegar ég gat sagt þeim frá því að ég hafði, af skærri hendingu, rekizt á sömu söngaðferðina í Sturlungu, þar sögð notuð til að kveða draugslega draumvísu árið 1208. Það sannar eigi aðeins að aðferðin er með vissu 500
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.