Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1952, Page 74

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1952, Page 74
54 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA þessa dúks, hefur hann lagt orðið út mauttull. Mauttull þessi á sér mjög merki- lega sögu, og hafði þó nokkur áhrif á rás viðburða í hinum austrænu heimkynnum sínum. Uppruni hans er sagður þessi. Sendimaður Abgars konungs var meðal annars listmál- ari, og í elztu heimild, þar sem myndar Krists er getið í sambandi við sendiferðina, er sagt, að hann hafi málað mynd af Kristi og fært konungi sínum. Þessi sögn mun vera frá því um miðja fjórðu öld. Hverfur svo myndin sjónum sögunnar um tvær aldir. Kemur þá sú fregn, að til sé mynd eða málverk af Kristi í Edessu, og sé myndin að uppruna ekki mannaverk. Fylgir sögunni, að þessi mynd hafi á yfirnáttúrulegan hátt hjálpað borgarbúum Edessu, er þeir vörðu borgina fyrir Persum árið 544. Þegar vígðu vatni var stökkt á hana, og svo af henni á turn mikinn, er Persar höfðu látið gera, kviknaði í honum og brann hann til kaldra kola, en Persar léttu umsátinni. (Sagnaritarinn Procopíus, sem uppi var, þegar Persar sátu um borgina, minnist ekkert á myndina, en segir, að borgarbúar hafi grafið neðanjarðargöng að turninum, kom- ið þar fyrir eldsneyti og kveikt í honum. Persar héldu, að eldurinn kæmi að ofan, og urðu vísir hins sanna, þegar of seint var orðið að slökkva). Loks um árið 730 skýrir Jóhannes frá Damaskus fyllilega uppruna myndarinnar, en frásögn hans er á þessa leið: Þegar listamaður Abgars konungs tó'k að mála Krist, veittist honum örðugt að lýsa á máladúk sínum svipbrigðum í andliti lausnarans og lét loks hendur fallast. Tók þá drott- inn vor dúkinn og brá honum á and- lit sér. Við það birtist mynd af ásjónu hans á dúknum, og var hann svo fluttur til konungs Armeníu. Hvarf dúksins um nokkrar aldir þar á eftir er skýrt á tíundu öld á þann hátt, að sonarsonur Abgars, guðlaus maður, hafi látið fela dúkinn, og fannst hann ekki fyrr en svarf mest að Edessumönnum í sumsát Persa um borgina árið 544, eins og fyrr greinir. Mun lítill efi á því, að um það leyti hefir einhver gömul mynd fundizt og verið strax fagnað sem mynd þeirri af Kristi, er Abgar hafði átt. Hefur því verið trúað, að hún væri ekki gerð af mannahönd- um, heldur drottni sjálfum. Frá þessum tíma óx frægð þessa dúks, og ljómi hans varð mikill. Var þetta af ýmsum ástæðum, sem hér verða ekki greindar. Þó skal þess getið, að hann var í miklum háveg- um hafður á þeim tímum, er mynda- deilurnar frægu geisuðu í Austur- löndum (725—843), Var myndadýrk- endum ekki lítil stoð í því að geta bent á mynd af Kristi, gerða af honum sjálfum. Hvað þurfti frekar vitna við, þegar drottni sjálfum hafði þóknazt að gera mynd af sjálf- um sér og senda hana Abgar kon- ungi. Síðar töldu margir, að sigur myndadýrkenda væri mikið að þakka hinum heilaga dúk. Eins og kunnugt er, lögðu Mú- hammeðstrúarmenn Edessu undir sig skömmu fyrir miðbik sjöundu aldar. En ekki varð það myndinni til tortímingar, því að sjálfir dýrk- endur spámannsins virtu mikils hina heilögu mynd, er varpaði slíkum ljóma á Edessu. Fór frægð myndar-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.