Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1952, Qupperneq 79
Mfw'inyp f
ÞORSTEINN Þ. ÞORSTEINSSON: gtwJ/ttCmj
Upphaf bygða íslendinga í N.D.
i.
Saga íslenzku bygðanna í Dakota
hefst með umbrotunum miklu í
Nýja-íslandi og stjórnast af nýrri út-
þrá eftir auðunnari bújörðum, fljót-
teknari feng og hærra arði hand-
aflans en frumskógurinn þar og vot-
lendið lét í té um og fyrir 1880, þótt
hending ein réði því happa vali.
Veturinn 1878 komu fáeinir menn
saman að Dvergasteini við Gimli,
þar sem Jón Bergmann bjó, til að
ráðfæra sig við séra Pál Þorláksson,
er þar var til heimilis, hvert halda
skyldi á ný út í heiminn til að leita
hetri landkosta en væri í Nýja-
íslandi. Var þar að ráði gert, að
htagnús Stefánsson og Sigurður
Jósúa Björnsson færu með séra Páli
til Minnesota-ríkis með vorinu, því
þar væri enn eftir ónumdar land-
spildur. En aðallega vakti það fyrir
séra Páli, að þeir leituðu ekki fyrir
sér fyrri en þeir kæmu í grend við
landnám íslendinga þar í Lyon og
Lincoln héruðum (counties).
Á útmánuðum 1878 átti séra Páll
1 mörgu að snúast. Framfari var
honum afar andvígur, því auk
)>seytjándu aldar“ trúarskoðana séra
^áls, hafði „betlibréfið“, er blaðið
nefndi svo, bætzt við á syndareikning
hans, þegar hann leitaði hjálpar
PUrfandi safnaðarmönnum sínum í
Nýja-íslandi. En með allri þeirri
miklu óvægni sköpuðu forráðendur
Framfara blaðinu aldurtjón, því upp-
sagnir hinna sárreiðu safnaðar-
manna séra Páls, fylgdu eins vissar
ákærunum og nóttin deginum. Um
þessar mundir þurfti séra Páll ekki
einungis að verja gerðir sínar innan
nýlendunnar, í samráði við sóknar-
börn sín, heldur einnig meðal Norð-
manna suður í Bandaríkjum, er gjaf-
irnar komu frá, því þar var hann
líka ófrægður fyrir þessa frammi-
stöðu sína, í skrifum þangað frá
Nýja-íslandi, og varð þar að bera
hönd fyrir höfuð sér. En ekkert
hnektu þessi skrif orðstír hans meðal
norsku Sýnódumannanna.
Þrátt fyrir alt þetta, gleymdi séra
Páll ekki köllun sinni, og vann því
meira að andlegum málum meðal
safnaða sinna, sem tíminn styttist
til brottferðar hans úr nýlendunni
í það sinn. Á pálmasunnudag (14.
apríl) messaði hann á Gimli yfir tvö
hundruð manns, fermdi tuttugu og
þrjú börn, en um hundrað manns
var til altaris. Á skírdag (18.) mess-
aði hann að Höfn og að Bakka á
föstudaginn langa, en aftur á Gimli
á páskadaginn (21.). Var þar margt
við messu, og þar kvaddi hann safn-
aðarfólk sitt. Þriðjudaginn (23.) gaf
hann saman í hjónaband Samson
Bjarnason og Önnu dóttur Jóns