Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1952, Side 128
108
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
byggöirnar fyrir rausnarlegar móttökur
og framlög, og lýsti fögnuöi sínum yfir
þvl hve fjársöfnunin og íslenzka deildin
væri nú vel á veg komin.
Prófessor Finnbogi GuÖmundsson þakk-
aöi meö hlýjum oröum heillaóskirnar sér
til handa og boö um samvinnu, er komið
höfðu fram bæði I skýrslunni og um-
ræðunum.
Að lokum var skýrslan samþykt á þann
hátt, að þingmenn risu úr sætum og létu I
ljósi ánægju slna með lófataki.
Séra Friðrik A. Friðriksson prófastur frá
Húsavík var staddur á þingi og bauð for-
seti hann hjartanlega velkominn. Tók séra
Friðrik til máls og minntist hlýlega á
þjóðræknisstarfsemi Vestur-íslendinga og
árnaði félaginu heilla.
Nú sátu þingnefndir á fundum og gat
forseti þess, að tlmi gæfist á meðan til að
ræða að nokkru hvenær næsta þing yrði
haldið og tóku þessir til máls:
Ingólfur Bjarnason, Trausti Isfeld, H. B.
Grímson, Th. J. Gíslason, J. B. Johnson,
Ingibjörg Jónsson, Aldís Pétursson, Jó-
hannes Anderson og Mrs. Sylvia De Lar-
onde. Voru skoðanir all-skiptar.
Samkvæmt tillögu Miss E. Hall og Ing-
ólfs Bjarnasonar var fundi frestað til kl.
2 e. h.
Fjórði fundur
Þjóðræknisfélagsins var settur kl. 2 e. h.
á þriðjudaginn 3. júní. Fundargerningur
var lesinn og var hann samþyktur.
T. J. Glslason lagði fram álit útgáfu-
nefndar I fimm liðum og lagði til að það
væri tekið lið fyrir lið; Mrs. S. De Laronde
studdi.
Álit útgáfunefndar
1. Þingið þakkar ritstjóra Timaritsins,
Mr. Glsla Jónssyni, ágætt starf hans á
árinu liðna.
2. Þingið vottar Mrs. Björgu Einarsson
þakklæti fyrir hennar mikla dugnað við
auglýsingasöfnun fyrir Tímaritið, og aug-
lýsendum fyrir ágætan stuðning við ritið.
3. Þingið þakkar Þjóðræknisfélagi ís-
lendinga I Reykjavík allan stuðning I sam-
bandi við útbreiðslu Tímaritsins á íslandi.
4. þingið felur væntanlegri stjórnar-
nefnd að sjá um útgáfu Tímaritsins á
komandi ári og að ráða ritstjóra.
5. Vegna hins afarháa verðlags á öllu,
og vegna þess að nefndinni skilst að á
árinu, sem leið, hafi orðið fjárhagslegur
halli I sambandi við útgáfu ritsins, þá
leggur nefndin til, að I stað $1.00, eins
og verið hefir, sé meðlimagjald félags-
manna $2.00 og I því gjaldi innifelst
Tlmarit félagsins.
J. JOHNSON
H. B. GRÍMSON
T. J. GÍSLASON
1. liður var samþyktur samkvæmt til-
lögu Mrs. B. E. Johnson og Jóns Jónssonar.
2. liður samþyktur samkvæmt tillögu
Mrs. Backman og Einars Magnússonar.
3. liður samþyktur samkvæmt tillögu
Ingibjargar Jónsson og Mrs. L. Sveinsson.
4. liður samþyktur samkvæmt tillögu
J. B. Johnson og Finnboga Guðmunds-
sonar.
5. liður. Mrs. B. E. Johnson lagði til, og
Ingólfur Bjarnason studdi, að þessum lið
væri vlsað til nefndarinnar, sem kæmi inn
á þing með Ný inál.
Þá tilkynti Dr. Richard Beck, að ung-
mennafélögin á Islandi hefðu I huga að
reisa Stephani G. Stephansson skáldi
minnisvarða á fæðingarstað hans I Skaga-
firði og að því yrði komið I framkvæmd
fyrir aldarafmæli skáldsins 3. okt. 19 53.
Hefði framkvæmdarnefnd ungmennafélag-
anna látið gera merki úr silfri er seljast
ætti fyrir einn dollar hvert I þeim til-
gangi að afla fjár til þessa fyrirtækis, og
hafði Dr. Beck nokkur þessara merltja
meðferðis ef félagsmenn myndu vilja
styðja málið með þvl að kaupa þau. Dr.
Beck beindi jafnframt þessari áskorun
til væntanlegrar stjórnarnefndar félags-
ins:
„Vil ég beina því til væntanlegrar
stjórnarnefndar, að hún beiti sér fyrir
þvl, að aldarafmælis (hundruðustu ár-
tlðar) Stephans G. Stephanssonar skálds
næsta ár verði minnst með sem víðtækust-
um og virðulegustum hætti vestan hafs,
og eigi nefndin samvinnu um það mál við
aðra aðila, er þar eiga hlut að máli, svo
sem prófessorinn I Islenzkum fræðum við
Manitobaháskóla, deildir félagsins, og
aðra þá I byggðum íslendinga, er stuðla
vilja að sllku hátíðahaldi."
Var gerður góður rómur að ræðu Dr.
Becks og Finnbogi prófessor Guðmunds-
son tók til máls, og sagði að ekki væri
ráð nema I tlma væri tekið. Sagði hann
að afmælisdagur skáldsins, 3. okt., væri
eigi hentugur til hátlðahalds og væri hann
að leita sér upplýsinga um hvenær há-
tlðahöldin á íslandi færu fram. Á þessu
sumri hefðu yfir 20 Vestur-lslendingar
heimsótt ísland og færi vel á því ef fleiri
Vestur-íslendingar heimsæktu ísland næsta
sumar og sætu hátíð Stephans G. Stephans-
sonar. Létu báðir ræðumennirnir I Ijási
aðdáun sina yfir andlegum afreksverkurn
hins mikla skálds.
Mr. G. J. Oleson frá Glenboro var stadd-
ur á þingi, er hann skrifari deildarinnar
þar, en sagði að fulltrúar hefðu ekki verið
kosnir á þingið. Hann las skýrslu yí'r
framkvæmdir deildarinnar á umliðnu árn