Neytendablaðið - 01.11.2000, Qupperneq 5
Frá kvörtunarþjónustunni
vara er gölluð er að krefjast afsláttar
af kaupverði vegna gallans og skal þa
kaupverðið lækka í samræmi við það
sem gallinn rýrir verðgildi vörunnar.
Ef vara er verulega gölluð og hægt er
að fá aðra eins í staðinn getur kaup-
andi krafist þess. Kaupandi getur
einnig rift kaupunum að öllu eða að
hluta ef galli telst verulegur. Loks má
geta þess að almennt á kaupandi rétt
á að fá skaðabætur vegna galla á vöru
og annars fjártjóns sem hann verður
fyrir vegna gallans. Það er þó algeng-
ast að seljandi óski eftir að gera við
vöruna og er honum það heimilt að
vissum skilyrðum uppfylltum og
samsvarar það í raun greiðslu skaða-
bóta til kaupandans. Seljandi ber
ábyrgð á galla á vöru í eitt ár frá því
að kaupin áttu sér stað nema hann
hafi ábyrgst vöruna í lengri tíma. Það
er mikilvægt að geyma kvittun fyrir
kaupunum því það getur verið nauð-
synlegt að sanna hvenær varan var
keypt.
Kvörtunar- og leiðbeiningaþjón-
usta Neytendasamtakanna
Hjá Neytendasamtökunum er starf-
rækt kvörtunar- og leiðbeiningaþjón-
usta og geta neytendur sem telja brot-
ið á rétti sínum leitað þangað og
fengið upplýsingar um rétt sinn og
aðstoð við að ná honum fram. Einnig
eru Neytendasamtökin aðilar að sex
kvörtunar- og úrskurðamefndum sem
neytendur geta skotið málum sínum
til en þessar nefndir snúa að viðskipt-
um við verslanir, efnalaugar, ferða-
skrifstofur, iðnaðarmenn, fjármála-
fyrirtæki og vátryggingafélög.
Samkeppnisráð bannar
BT að auglýsa farsíma
á krónu
Eins og fram kom í síðasta
tölublaði Neytendablaðs-
ins sendu Neytendasam-
tökin kvörtun til Sam-
keppnisstofnunar vegna
auglýsinga BT á far-
símum þar sem meðal
annars var auglýstur
Nokia 5110-sími á 1
krónu. í kjölfarið sendi
Samkeppnisstofnun
BT fleiri en eitt bréf
þar sem hún beindi
þeim tilmælum til BT
að breyta auglýsingum
sínum í samræmi við
ábendingar stofnunarinnar.
BT breytti loks auglýsing-
um sínum lítillega en þær
voru þó enn villandi og í
raun ómögulegt fyrir neyt-
andann að átta sig á hvert
raunverulegt verð farsím-
í auglýsingum nr. 21/1995,
þar sem þær séu ófull-
nægjandi og villandi. Til
að verðupplýsingarnar í
auglýsingum séu í sam-
ræmi við lög taldi sam-
keppnisráð að BT yrði að
láta koma skýrt fram í aug-
lýsingum í einni upphæð
það verð sem neytendur
þurfa að greiða á því 12
mánaða tímabili sem þeir
skuldbinda sig til við kaup
á farsíma. Það er því lág-
mark að BT gefi upp
kostnaðinn alls á tímabil-
inu og staðgreiðsluverð
símans. Loks bannaði
Samkeppnisráð BT að
birta auglýsingar sem
eru ekki í samræmi við
reglur um verðupplýs-
ingar í auglýsingum og
ef ekki verður farið eft-
ir banninu beitir Sam-
keppnisstofnun viður-
lagakafla samkeppn-
islaga þar sem meðal ann-
ars er kveðið á um sektir.
I ákvörðun Samkeppn-
isráðs var sett upp eftirfar-
andi dæmi um tvo mest
auglýstu farsímana hjá BT:
fyrir auglýsinganefnd og Nokia Nokia
loks til samkeppnisráðs en 5110 3210
ákvörðunarorð samkeppn- Auglýst verð BT, sem í raun er útborgun, kr. 1 3.210
isráðs 2. október voru á Tal 12-afborgun af síma í 12 mán., alls kr. 4.800 9.600
þann veg að samkeppnis- Símakort og símanúmer, kr. 1.999 1.999
ráð telur að tilboðsauglýs- Tal 12 áskrift, ódýrasta leið, FrítaL í 12 mán.,
ingar BT á farsímum brjóti gegn ákvæðum 21. greinar alls kr. 6.000 6.000
Kostnaður alls á timabilinu, kr. 12.800 20.809
samkeppnislaga, sbr. 4. gr.
reglna um verðupplýsingar Staðgreiðsluverð á einum síma, kr. 12.990 14.990
Mislukkað húðflúr hjá Nöglum og fegurð
Til Neytendasamtakanna
leitaði neytandi sem hafði
fengið gert húðflúr í
kringum augu á snyrti-
stofunni Nöglum og feg-
urð. Aðgerðin misheppn-
aðist og var ekki hægt að
laga húðflúrið þannig að
viðunandi væri. Auk þess
að vera með varanlegt lýti
á augunum fékk neytand-
inn sýkingu eftir aðgerð-
ina. Fór hún fram á tafar-
lausa endurgreiðslu.
Snyrtistofan neitaði að
endurgreiða nema lítinn
hluta og sagði þetta vera á
ábyrgð starfsmanns sem
sjálfstæðs verktaka, en
neytandinn gat engan
veginn gert sér grein fyrir
að umræddur starfsmaður
væri „sjálfstæður verk-
taki“.Við eftirgrennslan
kvörtunarþjónustu Neyt-
endasamtakanna kom
einnig í ljós að stofan
hafði ekki tilskilin réttindi
til að gera húðflúr og
neytandinn hafði ekki
verið látinn lesa og skrifa
undir tilskilda pappíra frá
Landlæknisembættinu.
Þrátt fyrir allt þetta hefur
snyrtistofan ekki fallist á
að endurgreiða neytand-
anum umrætt húðflúr og
er kvörtunarþjónustan nú
að sækja um gjafsókn fyr-
ir konuna þannig að við-
unandi lausn fáist.
NEYTENDABLAÐIÐ - nóvember 2000
5