Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.11.2000, Síða 37

Neytendablaðið - 01.11.2000, Síða 37
Hátt verð á tölvum hér á landi Neytendablaðinu hefur borist þetta bréf frá reiðum neytanda: „Fyrir ekki löngu var ódýrt að kaupa tölvur á Islandi. Sú þróun hefur snúist við. Fyrir- tæki auglýsir nú tölvu sem er af afgangslager Compaq á 150.000 krónur, eins og um kostakjör sé að ræða. Raunin er sú að verið er að auglýsa tölvuna á okurverði, tölvu sem ólíkegt er að sé framleidd lengur. íhlutir þessarar tölvu er engan veginn í takt við það sem sanngjarnt væri fyrir þetta verð. Gott dæmi um verð á tölv- um er meðal annars að finna á breskri heimasíðu og er slóðin: http://www. morgancomputers.co.uk/shop -products/shop-product- info.ASP?productID=235. Á síðunni er að finna mörg til- boð á langtum lægra verði en býðst hérlendis. Sama fyrir- tæki er einmitt gjarnan með afgangsvörur („surplus“-vör- ur) sem oft er verið að selja fáfróðum viðskiptavinum hér- lendis. Verð er skárra, en ekki mun skárra en hjá samkeppn- isaðilum. Helstu tilboðin eru þó með vélbúnaði í síðari kantinum. Að auki var nýlega verið að selja grimmt lélegan prentara á um 6-7.000 krónur eins og um kostagrip væri að ræða, prentara sem er löngu hætt að framleiða, HP 610. Myndgæði þess prentara eru um fimm árum á eftir því sem nú býðst. Enginn sölumaður ætti samvisku sinnar vegna að ráðleggja nokkrum manni að kaupa slíkan prentara, ekki síst þar sem mun nýrri og betri prentarar frá Canon hafa fengist á svipuðu verði. (Eg er ekki að segja að HP-prentarar séu almennt verri, þvert á móti.) Það er alveg augljóst að verið var að selja stóran af- gangslager. Einnig má benda á að rekstrarvörur fyrir prent- ara eru allt að því þrefalt dýr- ari en í nágrannalöndunum. Það hefur reyndar verið lengi. Fyrir um ári keypti ég gott DVD-drif í tölvu á tæpar 10 þúsund krónur, sem var al- gengt verð þá. Einn aðili aug- lýsir nú „tilboðsverð" á drifi á 12.900 krónur, að ýmsu leyti minna eftirsóknarvert drif. Það er ekkert sem skýrir af hverju DVD-drif eru dýrari í dag en fyrir ári. Mikil lækkun á meðalgóð- um skjákortum hefur ekki skilað sér hingað. Verð á minniseiningum er of hátt og hefur ekki lækkað lengi. Ég tel sterkar vísbendingar um samráð á þessum markaði. Verðþróun á þessu ári hefur verið afar óeðlileg. Það er þó jákvætt að nú virðast móður- borð og örgjörvar vera að lækka, að vísu löngu eftir lækkanir á heimsvísu. Það væri ánægjulegt að sjá Neytendasamtökin gera verð- athugun á tölvumarkaðnum. ekki síst samanburð á verð- lagsþróun hér og annarstaðar. Þess skal getið að ég vinn við tölvur og hef gert það lengi.“ Fyrirmyndarþjónusta Félagsmaður hringdi og vildi konia þessu á framfæri: Dóttir mín fékk á síðustu jólum skó að gjöf. Hún skilaði þeirn í verslun Steinars Waage og fékk innleggsnótu með nafni sínu. Þessari nótu var stolið frá henni. Dóttir mín var erlendis í allt sumar og var ekkert gert í málinu. Nú nýlega hringdi ég svo til verslunarinnar til að spyrjast fyrir unt hvort inneignarnótan haft komið fram og sagði þeim hvernig í pottinn væri búið. Hvað haldið þið að verslun Steinars Waage geri? Hún sendir dömunni nýja innleggs- nótu. Er þetta ekki frábært? Ég vildi bara að fleiri vissu urn þetta. Það þarf að borga fyrir tvær sjónvarpsrásir til að fá enska boltann Neytendablaðinu barst þetta bréf frá neytanda: „Mér finnst Islenska útvarps- félagið vera að brjóta ansi harkalega á þeim sem hafa áhuga á enska boltanum. Ég er ekki tilbúinn að borga fyrir tvær sjónvarpsstöðvar til að horfa á sömu þáttaröðina. Þeir eru alveg augljóslega ekki með hagsmuni neytanda í fyrirrúmi í þessu máli. Ég lít á þetta sjónvarpsefni eins og hverja aðra þáttaröð. Þeir skipta þessu niður á tvær stöðvar, sýna laugardagsleik- ina á Stöð 2 og sunnudags- og mánudagsleikina á Sýn. Að mínu mati finnst mér þetta vera svipað og skipta þáttaröð og sýna annan hvern þátt á Stöð 2 og annan hvern á Sýn.“ Neytendablaðið lagði bréf- ið fyrir forstjóra íslenska út- varpsfélagsins. Þegar þetta er skrifað hefur ekki borist svar. Sá sem þessar línur skrifar þarf að beygja sig undir sama agavald og bréfritari og sleppir því enska boltanum. NEYTENDABLAÐIÐ - nóvember 2000 37

x

Neytendablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.